Biblían lýsir dugmikilli eiginkonu
Í 31. kafla Orðskviðanna er að finna mikilvæg skilaboð til Lemúels konungs frá móður hans. Viturlegar leiðbeiningar hennar hjálpuðu honum að sjá að hverju hann ætti að leita í fari dugmikillar konu.
Dugmikil eiginkona er traustsins verð
-
Hún kemur með gagnlegar tillögur varðandi ákvarðanir fjölskyldunnar en er jafnframt undirgefin.
-
Eiginmaður hennar treystir henni til að taka skynsamlegar ákvarðanir og krefst þess ekki að hún fái samþykki hans í öllum málum.
Dugmikil eiginkona er vinnusöm
-
Hún lærir að vera sparsöm og nægjusöm svo að fjölskylda hennar geti verið snyrtilega og sómasamlega klædd og hafi nóg að borða.
-
Hún vinnur af kappi og vakir yfir heimilisfólki sínu dag og nótt.