2. JÓHANNESARBRÉF 1–13; 3. JÓHANNESARBRÉF 1–14–JÚDASARBRÉFIÐ 1–25
FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS |Við verðum að berjast til að halda áfram að þjóna Guði
Jesús áminnti þjóna sína: „Leggið hart að ykkur til að komast inn um þröngu dyrnar.“ (Lúk 13:24) Orð Jesú gefa til kynna baráttu, að við þurfum að leggja eitthvað á okkur til að fá viðurkenningu Guðs. Júdasi hálfbróður Jesú var innblásið að skrifa svipað: ,Berjist af krafti fyrir trúnni.‘ Við verðum að leggja okkur fram við að gera eftirfarandi:
-
Hafna kynferðislegu siðleysi. – Júd 6, 7.
-
Virða þá sem fara með yfirvald. – Júd 8, 9.
-
Styrkja okkar „helgustu trú“, þekkingu okkar á kenningum kristninnar. – Júd 20, 21.