„Ég þekki verk þín“
-
,Stjörnurnar sjö‘: Andasmurðir öldungar og í víðara samhengi allir öldungar.
-
,Í hægri hendi‘ Jesú: Stjörnurnar eru algerlega undir stjórn Jesú og fylgja leiðbeiningum hans. Ef einhver í öldungaráðum safnaðanna þarfnast leiðréttingar sér Jesús um það hvenær og hvernig viðkomandi er leiðréttur.
-
,Gullljósastikurnar sjö‘: Kristnir söfnuðir. Alveg eins og ljósastikan í tjaldbúðinni gaf frá sér birtu gefa sannkristnir söfnuðir frá sér andlega birtu. (Mt 5:14) Jesús „gengur um milli“ ljósastikanna á þann hátt að hann hefur yfirumsjón með starfi allra safnaða.