LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Erfitt verkefni heppnaðist fyrir tilstilli heilags anda
Þjónar Guðs hafa í tímans rás leyst af hendi afar erfið verkefni, ekki vegna eigin hæfileika heldur með hjálp Jehóva. Árið 1954 gaf söfnuður Jehóva út kvikmyndina The New World Society in Action. Það voru aðallega Betelítar sem unnu að gerð myndarinnar þótt þeir hefðu enga reynslu af kvikmyndagerð. Fyrir tilstilli heilags anda Jehóva tókst að ljúka þessu erfiða verkefni. Það sýnir okkur að ef við treystum á Jehóva getum við leyst af hendi hvert það verkefni sem okkur er falið. – Sak 4:6.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ GERÐ KVIKMYNDARINNAR „THE NEW WORLD SOCIETY IN ACTION“ OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvers vegna var ákveðið að búa til kvikmynd um aðalstöðvarnar?
-
Hvernig sýndi kvikmyndin að Betel er að mörgu leyti eins og mannslíkaminn? – 1Kor 12:14–20.
-
Við hvaða vandamál þurftu bræðurnir að glíma þegar þeir unnu að myndinni og hvernig leystu þeir málin?
-
Hvað lærum við af þessu um heilagan anda Jehóva?