FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS
Veldu þér maka skynsamlega
Það var óskynsamlegt af Salómon að giftast konum sem tilbáðu falsguði. (1Kon 11:1, 2; w18.07 18 gr. 7)
Eiginkonur Salómons sneru hjarta hans smám saman burt frá Jehóva. (1Kon 11:3–6; w19.01 15 gr. 6)
Jehóva varð ofsareiður út í Salómon. (1Kon 11:9, 10; w18.07 19 gr. 9)
Orð Guðs ráðleggur einhleypu kristnu fólki að giftast aðeins einstaklingi sem þjónar Drottni. (1Kor 7:39) Skírnin ein og sér gerir fólk ekki að góðum maka. Er líklegt að þessi einstaklingur komi til með að hjálpa þér að þjóna Jehóva af öllu hjarta? Hefur þessi einstaklingur sýnt innilegan kærleika til Jehóva um nokkuð skeið? Taktu þér tíma til að kynnast tilvonandi maka þínum vel áður en þú fellst á að ganga í hjónaband.