LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Gagnlegir valmöguleikar í Von um bjarta framtíð
Ertu hrifinn af myndböndunum og viðhorfsspurningunum í bókinni Von um bjarta framtíð? Hvað finnst þér um „Sumir segja“, „Markmið“ og „Kannaðu“? Hvað fleira finnst þér gagnlegt að nota þegar þú ert að kenna biblíunemendum? – Mt 28:19, 20.
Efni: Ef þér finnst betra að nota prentaða bók við kennsluna, hvernig geturðu þá nálgast öll myndskeiðin og annað efni auðveldlega á einum stað? Veldu einn af bókarhlutunum fjórum í rafrænu bókinni. Aftast í listanum yfir kaflaheitin er hægt að velja allt efnið fyrir þann bókarhluta. (Sjá mynd 1.)
Stillingin „Prentuð útgáfa“: Ef þú notar síma eða spjaldtölvu við kennsluna gæti þér öðru hverju fundist gagnlegt að nota stillinguna „Prentuð útgáfa“. Smelltu á punktana þrjá á stikunni efst á síðunni í kaflanum og veldu „Prentuð útgáfa“. Þetta snið gæti auðveldað þér að hafa skýrt í huga hvernig efnið sem þú ert að ræða um tengist heildarstefi kaflans. Til að fara til baka í rafrænu útgáfuna þarf aðeins að smella aftur á punktana þrjá og velja „Rafræn útgáfa“.
„Er ég tilbúinn?“: Þessar rammagreinar aftarlega í bókinni tilgreina grundvallarkröfur sem þarf að uppfylla til að boða trúna með söfnuðinum og láta skírast. (Sjá mynd 2.)
Aftanmálsgreinar: Aftanmálsgreinar veita nánari skýringar á mikilvægu efni. Í rafrænu útgáfu bókarinnar er hlekkur í lok hverrar aftanmálsgreinar til að komast til baka á réttan stað í kaflanum. (Sjá mynd 2.)
Mikilvægt er að fara yfir námsefnið til enda í Von um bjarta framtíð með nemendum sem taka góðum framförum, jafnvel þótt þeir láti skírast áður en þið klárið að fara yfir bókina. Þú mátt halda áfram að telja starfstíma, endurheimsóknir og biblíunámskeið þótt nemandinn hafi látið skírast. Ef annar boðberi fer með þér og tekur þátt í biblíunámskeiðinu má hann líka telja tímann.