Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Notaðu JW.ORG heimasíðuna í boðuninni

Notaðu JW.ORG heimasíðuna í boðuninni

Greinar og myndbönd sem birtast á heimasíðunni á vefsetri okkar höfða til fólks með gott hugarfar. (Pos 13:48) Oft er fjallað um efni sem er í fréttum og almenningur hugsar og talar um.

Hvernig getur þú notað jw.org heimasíðuna til að boða trúna?

  • Hafðu það fyrir venju að skoða vefsetrið. Fylgstu með nýjasta forsíðuefninu og íhugaðu hvernig þú gætir notað það til að hjálpa einhverjum sem sýnir áhuga. (Smelltu á „Sjá meira“ til að sjá valið efni sem hefur nýlega birst á heimasíðunni.) Með því að fylgjast vel með því nýjasta á vefsetrinu er auðveldara að ræða um áhugavert efni í boðuninni.

  • Notaðu greinar og myndbönd sem eru á heimasíðunni til að hefja umræður. Þetta efni gefur okkur hugmynd um hvað fólk á starfsvæðinu er að hugsa.

  • Sýndu fólki heimasíðuna. Leggðu áherslu á ákveðið umræðuefni og sýndu hvernig hægt er að finna efnið á vefsetrinu.

  • Sendu hlekk. Sumir hika við að tala við okkur en eru fúsir að skoða efni á vefsetri okkar. Þess vegna skaltu ekki hika við að senda áhugasömu fólki hlekk á ákveðna grein eða myndband sem er fjallað um á heimasíðunni.