Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

‚Tímarit sem Guð styður‘

‚Tímarit sem Guð styður‘

‚Tímarit sem Guð styður‘

MAÐUR nokkur sem er að kynna sér Biblíuna með aðstoð votta Jehóva í Nígeríu var viðstaddur ráðstefnu sem var skipulögð af afrískri nefnd um réttindi kvenna og barna. Hann hafði með sér tvö nýleg eintök af Vaknið!

Á fyrsta degi ráðstefnunnar tók hann eftir að ræðumaðurinn var að nota efnisatriði úr öðru blaðinu sem hann hafði meðferðis. Í því var greinaröð með yfirskriftinni „Það er þess virði að lifa“ (janúar-mars 2002). Hann tók því tafarlaust upp sitt eintak og fylgdist með.

Við lok dagsins sá lögfræðingur, sem átti að flytja fyrirlestur næsta dag, forsíðuna á hinu blaði biblíunemandans með yfirskriftinni „Hjálp handa konum sem verða fyrir heimilisofbeldi“. Lögfræðingurinn fékk blaðið lánað. Hann henti upphaflega uppkastinu að fyrirlestrinum og undirbjó í snatri nýjan fyrirlestur sem var byggður á greinunum í Vaknið! Daginn eftir, þegar lögfræðingurinn var að flytja fyrirlesturinn, tók kona, sem sat í sömu sætaröð og biblíunemandinn, upp sitt eintak af Vaknið! og fór að fylgjast með í því.

Biblíunemandinn gat lagt sitt af mörkum til umræðnanna á ráðstefnunni vegna þess að hann hafði lesið greinarnar í Vaknið! Hann sagði: ‚Ég er ekki í nokkrum vafa um að Guð styður þetta tímarit.‘

Vilt þú fá þetta tímarit reglulega heim til þín? Biddu þá einn af vottum Jehóva að koma því til þín.