Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Hvaða myndir verða sýndar í sumar?

Hvaða myndir verða sýndar í sumar?

Hvaða myndir verða sýndar í sumar?

HVAÐ finnst þér gaman að gera á sumrin? Þegar hlýnar í veðri hlakkar þú kannski til að vera meira utandyra og fara í skemmtilegar ferðir niður á strönd eða út í náttúruna.

Þeir sem starfa við kvikmyndaiðnaðinn vonast hins vegar til þess að milljónir manna eyði fjölmörgum klukkustundum á sumarmánuðum innandyra að horfa á kvikmyndir. Í Bandaríkjunum einum eru að minnsta kosti 35.000 kvikmyndasalir og á undanförnum árum hafa um 40 prósent af miðasölutekjum bandarískra kvikmyndahúsa komið inn á sumrin. * „Þetta er eins og jólavertíðin hjá kaupmönnunum,“ segir Heidi Parker hjá tímaritinu Movieline.

En þetta var ekki alltaf svona. Hér áður fyrr var lítið að gera í kvikmyndahúsum Bandaríkjanna á sumrin og mörg þeirra neyddust til að takmarka sýningar eða loka yfir sumarmánuðina. En um miðjan áttunda áratuginn fóru loftkæld kvikmyndahús að lokka til sín milljónir manna sem vildu flýja hitann utandyra. Börnin voru líka komin í sumarfrí. Þarna var ónýttur markaður sem fór ekki fram hjá vökulu auga kvikmyndaframleiðenda. Áður en langt um leið varð sumarið tími stórmyndanna. Þetta breytti kvikmyndagerð og markaðssetningu kvikmynda eins og við munum sjá.

[Neðanmáls]

^ Í Bandaríkjunum eru sumarmyndirnar sýndar frá maí til september.