Þú getur fundið sanna hamingju
Þú getur fundið sanna hamingju
ÚT UM allan heim virðast margir halda að til að verða hamingjusamur verði maður að eiga flottan bíl, næga bankainnistæðu, vera í virðulegu starfi, eiga stórt hús og allar nýjustu græjur auk þess að vera vel vaxinn eða vöðvastæltur. En er hamingjan í raun og veru háð útliti og efnislegum eigum?
Gerðar hafa verið „mun fleiri rannsóknir en áður á hamingju, bjartsýni, jákvæðum tilfinningum og heilbrigðum persónueinkennum,“ segir í grein í tímaritinu Time. Niðurstöður þessara rannsókna koma mörgum á óvart. Nánast allt ber að sama brunni, þeir sem telja að peningar, frægð eða fegurð veiti hamingju eru að blekkja sjálfa sig. Það mætti í rauninni segja að þeir séu að byggja líf sitt á grunni sem getur haft skaðleg áhrif á geðheilsuna og jafnvel leitt til þunglyndis.
Í Bandaríkjunum eru margir ríkari en nokkru sinni fyrr. „Við erum samt sem áður ekkert hamingjusamari,“ segir í Time. Hið sama má auðvitað segja um fólk í öðrum löndum. Í Kína hefur óhamingjusömu fólki fjölgað óhugnanlega þrátt fyrir uppsveiflu í efnahagslífinu. Í vefmiðlinum Access Asia kemur fram að sjálfsvíg þar í landi séu orðin „helsta dánarorsök fólks á aldrinum 15 til 34 ára“. Ein ástæðan virðist vera sú að mikið er þrýst á ungt fólk að komast áfram í hörðum og krefjandi heimi.
Efnisleg gæði draga greinilega ekki úr kvíða og streitu heldur ýta frekar undir slíkar tilfinningar. Í niðurstöðum háskólarannsóknar kom fram að „lífsstíll okkar er orðinn ein aðalorsök tilfinningalegra og geðrænna vandamála“. Van Wishard, sem hefur rannsakað félagslega hegðun fólks, bendir á að „kostnaður fyrirtækja vegna tilfinningalegra og geðrænna kvilla sé sá þáttur sjúkratrygginga sem vaxi hraðast“.
Börnin verða jafnvel fyrir áhrifum af þessum öru breytingum í heiminum. Nú eru fáanlegar bækur fyrir 8 ára börn sem hjálpa þeim að „koma auga á og vinna úr streitu,“ segir Van Wishard. Í skýrslu um þunglyndi kemur fram að í mörgum vestrænum löndum fjölgar þeim börnum sem greinast með þunglyndi um heil 23 prósent á ári og „leikskólabörn eru ört vaxandi markhópur fyrir þunglyndislyf“.
Ótti fer einnig ört vaxandi — og það ekki aðeins vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. Þar sem pólitískir og trúarlegir öfgahópar sækja í sig veðrið hræðast margir þær hörmungar sem framtíðin gæti borið í skauti sér. Er lausn í sjónmáli?
Fyrir um tvö þúsund árum kenndi Jesús Kristur fólki að lifa lífi sem er endurnærandi og dregur úr streitu. Hann byggði kennslu sína á einföldum en djúpstæðum sannleika. Hann sagði: „Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.“ (Lúkas 11:28) Já, Jesús hvatti áheyrendur sína til að einbeita sér að andlegum sannindum um skaparann og fyrirætlun hans með okkur.
Eins og fram kemur í næstu greinum geta þessi sannindi hjálpað okkur að sjá hvað er raunverulega mikilvægt og veitt okkur hamingju og lífsfyllingu. Og þau veita okkur líka bjarta von.
[Innskot á blaðsíðu 3]
Er hamingjan háð efnislegum eigum?