Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Með leiðsögn Guðs geturðu fundið „hið sanna líf“

Með leiðsögn Guðs geturðu fundið „hið sanna líf“

Með leiðsögn Guðs geturðu fundið „hið sanna líf“

ÞAÐ er afar mikilvægt að leiðsögumaður sé áreiðanlegur. Þeir sem þekkja Jehóva, höfund Biblíunnar, eru sannfærðir um að hann sé áreiðanlegastur allra. Hann getur ekki farið með lygi. (Títusarbréfið 1:2; 2. Tímóteusarbréf 3:16) Hinn guðhræddi Jósúa, sem leiddi Ísraelsmenn inn í fyrirheitna landið, bar vitni um áreiðanleika Jehóva. Hann ávarpaði þjóðina og sagði: „Þér skuluð vita af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar, að ekkert hefir brugðist af öllum þeim fyrirheitum, er Drottinn Guð yðar hefir gefið yður. Öll hafa þau rætst, ekkert af þeim hefir brugðist.“ — Jósúabók 23:14.

Frá tímum Jósúa hefur fjöldi biblíuspádóma til viðbótar hlotið uppfyllingu. Þar sem enginn þeirra hefur brugðist getum við treyst fullkomlega á uppfyllingu þeirra sem eftir eru. Margir þessara spádóma fjalla um fyrirætlun Guðs með jörðina og hlýðið mannkyn.

Nýttu þér leiðsögn Guðs

Jehóva er persónugervingur kærleikans og vill að við séum hamingjusöm núna og um alla eilífð. (Jóhannes 17:3; 1. Jóhannesarbréf 4:8) Já, Guð vill að við öðlumst „hið sanna líf“ — eilífa lífið. (1. Tímóteusarbréf 6:12, 19) Þess vegna hlýða rúmlega sex milljónir votta Jehóva boði Guðs um að flytja nágrönnum sínum ‚fagnaðarerindið um ríkið‘. (Matteus 24:14) Eins og er sinna þeir þessu starfi í 235 löndum — næstum öllum löndum heims.

Guðsríki er himnesk stjórn í höndum Jesú Krists. (Daníel 7:13, 14; Opinberunarbókin 11:15) Undir stjórn hans verður öllum illum mönnum eytt, það er að segja þeim sem neita að fylgja réttlátum meginreglum Jehóva. (Sálmur 37:10; 92:8) Í kjölfarið verður öll jörðin „full af þekkingu á Drottni, eins og djúp sjávarins er vötnum hulið“. — Jesaja 11:9.

Ímyndaðu þér friðinn og eininguna sem mun ríkja þegar allir jarðarbúar tilbiðja Guð „í anda og sannleika“ og fylgja fúslega leiðbeiningum hans og fullkomnum mælikvarða. (Jóhannes 4:24) Þá mun fólk loks njóta ‚hins sanna lífs‘ sem Guð hefur heitið.

En eins og spáð hefur verið munu tiltölulega fáir þiggja leiðsögn Guðs og hljóta líf. (Matteus 7:13, 14) Vilt þú vera meðal þeirra? Ef svo er hvetja vottar Jehóva þig eindregið til að kynna þér Ritninguna og þiggja handleiðslu Guðs. Þá geturðu fundið hve góður Jehóva er í raun og veru. (Sálmur 34:9) Já, rétt eins og eðlishvötin leiðir fugla á áfangastað mun Jehóva leiða trúa þjóna sína inn í paradís á jörð. — Lúkas 23:43.

[Mynd á blaðsíðu 8, 9]

„Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.“ — MATTEUS 5:5.

„Hinir hógværu fá landið til eignar, gleðjast yfir ríkulegri gæfu.“ — SÁLMUR 37:11.

„Tjaldbúð Guðs er meðal mannanna . . . Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera.“ — OPINBERUNARBÓKIN 21:3, 4.

„Hinir hreinskilnu munu byggja landið, og hinir grandvöru verða eftir í því. En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.“ — ORÐSKVIÐIRNIR 2:21, 22.