Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

„Ég vissi ekki að Guð ætti sér nafn“

„Ég vissi ekki að Guð ætti sér nafn“

„Ég vissi ekki að Guð ætti sér nafn“

◼ Þetta sagði kona nokkur eftir að hafa lesið bókina Hvað kennir Biblían? Hún bætti við: „En það er fullkomlega rökrétt. Nafn Guðs blasti við mér þegar ég fletti upp á því í biblíunni minni.“ Síðan sagði hún: „Ég hef aldrei lesið svona góða og auðskilda biblíuskýringabók.“

Í bókinni Hvað kennir Biblían? er bent á að Guð hafi í upphafi ætlast til að jörðin yrði paradís og varpað er ljósi á hvernig það verði að veruleika. Fjallað er um hið mikilvæga hlutverk sem Jesús Kristur, sonur Guðs, gegnir í því að vilji Guðs nái fram að ganga. Rætt er um skýringu Biblíunnar á því hvers vegna við mennirnir hrörnum og deyjum og ástæðuna fyrir því að Guð hefur leyft þjáningar. Einnig kemur fram hvernig ríki Guðs sér til þess að allar þjáningar hverfi.

Á þeim þrem árum, sem eru liðin síðan bókin Hvað kennir Biblían? kom út, er upplagið komið í 79 milljónir eintaka á 220 tungumálum. Þú getur eignast bókina með því að fylla út og senda miðann hér að neðan.

□ Vinsamlegast sendið mér þessa bók án allra skuldbindinga.

□ Vinsamlegast hafið samband við mig varðandi ókeypis biblíunámskeið.