Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Hún hefur hjálpað þeim að auðga líf sitt

Hún hefur hjálpað þeim að auðga líf sitt

Hún hefur hjálpað þeim að auðga líf sitt

◼ Margir sem hafa lesið bókina „Komið og fylgið mér“ segja hana hafa haft mikil áhrif á sig. Ein kona sagði: „Núna er Jesús mér enn raunverulegri. Ég skil betur hvaða hlutverki hann gegnir. Mig langar til að lifa innihaldsríkara lífi og taka þátt í að boða fagnaðarerindið sem fólk þarf sárlega á að halda.“

Faðir nokkur skrifar: „Bókin leiddi mér fyrir sjónir hversu mikilvægt er að líkja eftir fullkomnu fordæmi Jesú . . . Með því að lesa bókina lærði ég að hugleiða það sem Jesús kenndi og þá eiginleika sem hann sýndi — auðmýkt, kærleika, mikla þolinmæði, hlýðni og þolgæði. Jesús var frábært fordæmi og það hefur hvatt mig til að halda áfram á sömu braut.“

Annar lesandi sagðist alveg sammála textanum á baksíðu bókarinnar en þar segir meðal annars: „Jesús Kristur er leiðtoginn sem allir menn þarfnast . . . Þessi bók getur hjálpað þér að kynnast Jesú nánar og fylgja honum betur.“ Þessi lesandi sagði síðan: „Bókin kennir okkur að elska Jesú, trúa á hann og hlýða honum og fylgja.“

Bókin „Komið og fylgið mér“ er 192 blaðsíður og prýdd fjölda mynda. Meðal annars eru 13 heilsíðumyndir í lit sem lýsa ýmsum atburðum úr lífi Jesú. Þú getur pantað eintak með því að útfylla og senda miðann hér að neðan.

□ Vinsamlegast sendið mér þessa bók án allra skuldbindinga.

□ Vinsamlegast hafið samband við mig varðandi ókeypis aðstoð við biblíunám.