Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Þarf ég betri vini?

Þarf ég betri vini?

Ungt fólk spyr

Þarf ég betri vini?

„Ef ég er reið þarf ég að segja einhverjum hvernig mér líður. Ef ég er sorgmædd þarf ég einhvern til að segja mér að allt verði í lagi. Ef ég er glöð langar mig að deila því með einhverjum. Mér finnst algerlega nauðsynlegt að eiga vini.“ — Brittany.

STUNDUM er sagt að börn þurfi á leikfélögum að halda en unglingar þurfi vini. Hver er munurinn?

Leikfélagi veitir manni félagsskap.

Vinur hefur líka sömu gildi og maður sjálfur.

Þar að auki segir í Biblíunni: „Vinur lætur aldrei af vináttu sinni, í andstreymi reynist hann sem bróðir.“ (Orðskviðirnir 17:17) Þetta lýsir líklega dýpri vináttu en þú finnur á leikvellinum.

Staðreynd: Þegar þú nálgast fullorðinsaldur þarftu vini sem

(1) hafa góða eiginleika.

(2) lifa samkvæmt mælikvarða Biblíunnar.

(3) hafa jákvæð áhrif á þig.

Spurning: Hvernig veistu hvort þessi lýsing á við vini þína? Við skulum skoða nokkur atriði sem einkenna góða vináttu.

1. atriði — Góðir eiginleikar

Það sem þú ættir að vita. Ekki hafa allir, sem segjast vera vinir þínir, það sem þarf til að vera sannur vinur. Í Biblíunni segir jafnvel: „Til eru vinir sem bregðast.“ (Orðskviðirnir 18:24) Þetta kann að hljóma illa en hugleiddu eftirfarandi: Hefurðu einhvern tíma átt „vin“ sem notfærði sér þig, baktalaði eða tók þátt í að dreifa kjaftasögum um þig? Þú hættir að treysta vini þínum ef þú verður var við slíkt. * Mundu alltaf að það er betra að eiga fáa góða vini en marga falska.

Hvað geturðu gert? Veldu vini með eiginleika sem eru þess verðir að líkja eftir.

„Allir líta svo jákvæðum augum á Fionu, vinkonu mína. Ég vil að það sé talað jafn vel um mig. Ég vil hafa mannorð eins og hún hefur. Mér finnst það aðdáunarvert.“ — Yvette, 17 ára.

Reyndu þessa æfingu.

1. Lestu Galatabréfið 5:22, 23.

2. Spyrðu sjálfan þig: „Sýna vinir mínir eiginleikana sem mynda ‚ávöxt andans‘?“

3. Skráðu niður nöfn nánustu vina þinna. Skrifaðu við hlið hvers nafns eiginleika sem lýsir þeirri persónu best.

Nafn Eiginleiki

․․․․․ ․․․․․

․․․․․ ․․․․․

․․․․․ ․․․․․

Ábending: Ef þér dettur bara í hug neikvæðir eiginleikar gæti verið kominn tími til að leita að betri vinum.

2. atriði — Mælikvarði Biblíunnar

Það sem þú ættir að vita. Því örvæntingarfyllri sem þú ert um að eignast vini þeim mun líklegri ertu til að sætta þig við slæman félagsskap. Í Biblíunni segir: „Illa fer þeim sem leggur lag sitt við heimskingja.“ (Orðskviðirnir 13:20) Með orðinu ‚heimskingjar‘ er ekki átt við að fólk sé vitlaust, heldur lýsir það þeim sem snúa baki við góðum leiðbeiningum og lifa óskynsamlega frá siðferðilegu sjónarmiði. Þú þarft ekki á slíkum vinum að halda.

Hvað geturðu gert? Vertu vandlátur þegar þú velur þér vini í stað þess að vingast við hvern sem tekur við þér. (Sálmur 26:4) Það þýðir samt ekki að þú eigir að hafa fordóma. Í þessu samhengi þýðir það að vera vandlátur að þú sért nógu glöggur til að „sjá muninn á réttlátum og ranglátum, á þeim sem þjóna Guði og þeim sem þjóna honum ekki“. — Malakí 3:18.

Guð fer ekki í manngreinarálit en hann er vandlátur þegar hann velur hver fær ‚að leita hælis í tjaldi hans‘. (Sálmur 15:1-5) Þú getur gert hið sama. Ef þú lifir samkvæmt mælikvarða Guðs eru þeir sem leitast við að gera hið sama líklegri til að verða á vegi þínum. Þeir eru bestu vinir sem þú getur eignast þegar upp er staðið.

„Ég er þakklátur fyrir að foreldrar mínir hjálpuðu mér að eignast vini — fólk á mínum aldri sem lifir samkvæmt mælikvarða Guðs.“ — Christopher, 13 ára.

Reyndu þessa æfingu.

Svaraðu eftirfarandi spurningum

◼ Þegar ég er með vinum mínum er ég oft hræddur um að þeir reyni að beita mig þrýstingi til að gera eitthvað sem ég veit að er rangt.

□ Já □ Nei

◼ Hika ég við að kynna vinina fyrir foreldrum mínum vegna þess að ég óttast að foreldrum mínum muni ekki líka við þá?

□ Já □ Nei

Ábending: Ef þú svaraðir spurningunum hér að ofan játandi skaltu leita að vinum sem hafa betra siðferði. Væri ekki tilvalið að byrja á þeim sem eru eitthvað eldri en þú og lifa fyrirmyndarlífi sem kristnir menn?

3. atriði — Jákvæð áhrif

Það sem þú ættir að vita. Í Biblíunni er sagt: „Vondur félagsskapur spillir góðum siðum.“ (1. Korintubréf 15:33) Lauren, sem er um tvítugt, segir: „Skólafélagar mínir viðurkenndu mig á meðan ég gerði eins og þeir sögðu. Ég var einmana svo ég ákvað að haga mér eins og þeir svo að ég yrði ekki skilin út undan“. Lauren komst að því að þegar hún lagaði sig að kröfum eða siðferði annarra, varð hún eins og peð á skákborði og þeir gátu fært hana til eftir eigin geðþótta. Þú átt betra skilið.

Hvað geturðu gert? Rjúfðu tengslin við þá sem krefjast þess að þú lagir þig að þeirra lífsstíl. Ef þú gerir það mun þér líða betur með sjálfan þig og þú opnar dyrnar fyrir betri vináttu — vináttu sem hefur jákvæð áhrif á þig. — Rómverjabréfið 12:2.

„Clint, sem er náinn vinur minn, er skynsamur og tillitssamur. Hann hefur því verið mjög uppörvandi fyrir mig.“ — Jason, 21 árs.

Reyndu þessa æfingu.

Spyrðu sjálfan þig eftirfarandi spurninga:

◼ Breyti ég því hvernig ég klæði mig, tala eða kem fram til að þóknast vinum mínum?

□ Já □ Nei

◼ Stend ég sjálfan mig að því að fara með vinum mínum á siðferðilega vafasama staði sem ég færi venjulega ekki á?

□ Já □ Nei

Ábending: Ef þú svaraðir játandi spurningunum hér að ofan farðu þá til foreldra þinna eða einhvers sem er fullorðinn og þroskaður einstaklingur og fáðu ráðleggingar þar. Ef þú ert vottur Jehóva getur þú leitað til safnaðaröldungs og látið hann vita að þú óskir eftir aðstoð við að velja vini sem hafa betri áhrif á þig.

Finna má fleiri greinar á ensku úr greinaflokknum „Ungt fólk spyr“ á vefsíðunni www.watchtower.org/ype.

[Neðanmáls]

^ Allir gera að sjálfsögðu mistök. (Rómverjabréfið 3:23) Þegar vinur særir tilfinningar þínar en sýnir einlæga iðrun skaltu muna að „kærleikur hylur fjölda synda“. — 1. Pétursbréf 4:8.

TIL UMHUGSUNAR

◼ Hvaða eiginleikar finnst þér mikilvægastir í fari vinar og hvers vegna?

◼ Hvaða eiginleika þarftu að bæta í eigin fari til að verða betri vinur?

[Rammi/mynir á blaðsíðu 19]

ÞAÐ SEM JAFNALDRAR ÞÍNIR SEGJA

„Þegar foreldrar mínir beindu mér frá ákveðnum vinahópi sagði ég við sjálfan mig að þetta væri eina fólkið sem ég vildi umgangast. En ráðleggingar foreldra minna voru góðar og þegar ég náði áttum skildi ég að það er nóg af góðum félagsskap í boði.“ —  Cole.

„Besta leiðin til að kynnast fólki í söfnuðinum er að taka virkan þátt í boðunarstarfinu. Á þeim vettvangi fæ ég að umgangast alls konar fólk, bæði unga sem aldna. Og þá eyði ég tíma mínum með fólki sem elskar Jehóva.“ —  Yvette.

„Ég bað Guð um vini en svo áttaði ég mig á því að ég var ekki að gera neitt til að eignast þá. Þannig að ég fór að taka frumkvæðið að því að tala við aðra á samkomum. Fljótlega hafði ég eignast marga nýja vini og ég er næstum aldrei einmana lengur.“ — Sam.

[Rammi á blaðsíðu 20]

PRÓFAÐU ÞESSAR TILLÖGUR

Talaðu við foreldra þína um vináttubönd. Spyrðu þau hvers konar vini þau áttu þegar þau voru á þínum aldri. Sjá þau eftir því hverja þau völdu sem félaga? Ef svo er hvers vegna? Spyrðu foreldra þína hvernig þú getir forðast vandamál sem þau þurftu að glíma við.

Kynntu vinina fyrir foreldrum þínum. Ef þú ert hikandi við að gera það skaltu spyrja sjálfan þig hvers vegna. Er eitthvað í fari vina þinna sem þú veist að foreldrar þínir verða ósáttir við? Ef svo er gæti verið að þú þurfir að vanda þig betur þegar þú velur þér vini.

[Rammi á blaðsíðu 20]

ÞRJÁR LEIÐIR TIL AÐ HALDA GÓÐUM VINUM

Vertu góður hlustandi. Sýndu áhuga á líðan og hugðarefnum vina þinna. — Filippíbréfið 2:4

Vertu fús til að fyrirgefa. Ekki búast við fullkomnun. „Öll hrösum við margvíslega.“ — Jakobsbréfið 3:2.

Gefðu þeim svigrúm. Það er engin ástæða til að ríghalda í vinina. Sannir vinir eru til staðar þegar þú þarft á þeim að halda — Prédikarinn 4:9, 10.

[Mynd á blaðsíðu 18, 19]

Þegar þú lagar þig að mælikvarða annarra, einungis til að þóknast þeim, verður þú eins og peð á taflborði. Þeir geta þá hreyft þig til og frá eftir eigin geðþótta.