Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

„Eiga mennirnir eftir að eyða jörðina?“

„Eiga mennirnir eftir að eyða jörðina?“

Eiga mennirnir eftir að eyða jörðina?“

● Frá geimnum lítur jörðin út eins og undurfagur, blár og hvítur gimsteinn. En við nánari athugun kemur í ljós að heimkynni okkar eiga undir högg að sækja. Hvernig stendur á því? Málið er einfalt, mennirnir hafa reynst slæmir leigutakar. Þeir eyða jörðina í bókstaflegum skilningi með mengun, eyðingu skóga og rányrkju. Auk þess má segja að mennirnir eyði jörðina í siðferðilegum skilningi með ofbeldi, blóðsúthellingum og kynferðislegu siðleysi. Þeir virða einnig að vettugi þörfina á að eignast gott samband við Guð.

Fyrir rúmlega tvö þúsund árum var sagt fyrir um þessar dapurlegu aðstæður í stórmerkilegum spádómum í Biblíunni. (2. Tímóteusarbréf 3:1-5; Opinberunarbókin 11:18) Þar er því einnig spáð að lausnin sé í höndum Guðs en ekki manna. Fjallað verður nánar um þessa þýðingarmiklu spádóma í fyrirlestrinum „Eiga mennirnir eftir að eyða jörðina?“ Hann verður fluttur á landsmóti Votta Jehóva sem ber stefið „Til komi þitt ríki“.

Dagskráin er öllum opin og þú ert hjartanlega velkomin(n). Mótið verður haldið dagana 5. til 7. ágúst í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Á vefsíðunni www.pr418.com má sjá hvar mótin verða haldin annars staðar í heiminum.