RÁÐ VIÐ STREITU
Líf án streitu er mögulegt
Viska Biblíunnar getur hjálpað okkur að komast hjá óþarfa streitu. Við sjálf getum ekki losað okkur við allt sem veldur okkur streitu, en skapari okkar getur það. Hann hefur meira að segja valið þann sem á að koma okkur til hjálpar – Jesú Krist. Jesús á innan skamms eftir að vinna enn stórkostlegri verk á heimsvísu en hann vann þegar hann var maður á jörðinni. Skoðum nokkur dæmi:
JESÚS MUN LÆKNA VEIKA EINS OG HANN GAF DÆMI UM.
„Fólk kom til hans með alla sem kvöldust og þjáðust af ýmsum sjúkdómum ... og hann læknaði þá.“ – MATTEUS 4:24.
JESÚS MUN SJÁ ÖLLUM FYRIR MAT OG HÚSASKJÓLI.
„Menn [þegnar Krists] munu reisa hús og búa í þeim, planta víngarða og neyta ávaxta þeirra. Menn munu ekki reisa hús sem annar býr í, ekki planta og annar neyta.“ – JESAJA 65:21, 22.
STJÓRN JESÚ KEMUR Á FRIÐI OG ÖRYGGI UM ALLAN HEIM.
„Um daga hans mun hinn réttláti blómstra og friður og farsæld uns tunglið er ekki framar til. Hann mun ríkja frá hafi til hafs og frá Fljótinu til endimarka jarðar. Fjandmenn hans munu ... sleikja duftið.“ – SÁLMUR 72:7–9.
JESÚS ÚTRÝMIR ÓRÉTTLÆTI.
„Hann miskunnar sig yfir bágstadda og snauða og bjargar lífi hinna fátæku, frá ofbeldi og ofríki leysir hann þá.“ – SÁLMUR 72:13, 14.
JESÚS BINDUR JAFNVEL ENDA Á ÞJÁNINGAR OG DAUÐA.
„Dauðinn verður ekki til framar. Engin sorg, angistaróp né kvöl verður heldur til.“ – OPINBERUNARBÓKIN 21:4.