Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Hvers vegna þjáumst við, eldumst og deyjum?

Hvers vegna þjáumst við, eldumst og deyjum?

Skapari okkar lítur á okkur sem börn sín. Þess vegna vill hann ekki að við þjáumst. En það er svo mikil þjáning allt í kringum okkur. Hvernig stendur á því?

Fyrstu foreldrar okkar ollu okkur þjáningum

„Syndin kom inn í heiminn með einum manni og dauðinn með syndinni. Þannig barst dauðinn til allra manna.“ – RÓMVERJABRÉFIÐ 5:12.

Guð skapaði fyrstu foreldra okkar, Adam og Evu, með fullkominn huga og líkama. Hann gaf þeim líka paradís að heimili hér á jörð. Það var garður sem nefndist Eden. Hann sagði þeim að þau mættu borða af öllum trjánum í garðinum nema einu. En Adam og Eva kusu að borða af ávexti þessa trés og það var synd. (1. Mósebók 2:15–17; 3:1–19) Eftir óhlýðni hjónanna rak Guð þau úr garðinum og líf þeirra varð erfitt. Síðar eignuðust þau börn og líf þeirra var líka erfitt. Þau eltust öll og dóu. (1. Mósebók 3:23; 5:5) Við veikjumst, eldumst og deyjum vegna þess að við erum afkomendur þessarar fyrstu fjölskyldu.

Illir andar auka á þjáningar okkar

„Allur heimurinn er á valdi hins vonda.“ – 1. JÓHANNESARBRÉF 5:19.

Þessi „vondi“ er kallaður Satan. Hann er ósýnileg andavera sem gerði uppreisn gegn Guði. (Jóhannes 8:44; Opinberunarbókin 12:9) Síðar meir slógust aðrar andaverur í lið með Satan. Þær eru kallaðar illir andar. Þessir illu andar nota kraft sinn til að blekkja fólk og gera það fráhverft Guði. Þeir fá marga til að gera slæma hluti. (Sálmur 106:35–38; 1. Tímóteusarbréf 4:1) Satan og illir andar njóta þess að valda þjáningum.

Stundum völdum við sjálfum okkur þjáningum

„Það sem maður sáir, það uppsker hann.“ – GALATABRÉFIÐ 6:7.

Við þjáumst öll á margvíslegan hátt vegna syndarinnar sem við höfum tekið í arf og vegna áhrifanna frá heimi Satans. En stundum eykur fólk á eign þjáningar. Hvernig þá? Þegar það gerir slæma hluti eða tekur óviturlegar ákvarðanir uppsker það oft afleiðingarnar. Sem dæmi mun eiginmaður sem er heiðarlegur, vinnusamur og ástríkur við fjölskyldu sína uppskera margt gott og stuðla að hamingju fjölskyldu sinnar. En maður sem spilar fjárhættuspil, er drykkfelldur eða latur gæti leitt fátækt yfir sig og fjölskyldu sína. Það er því viturlegt að hlusta á skapara okkar. Hann vill að við uppskerum margt gott og þar á meðal „mikinn frið“. – Sálmur 119:165.

Við lifum á „síðustu dögum“

‚Á síðustu dögum verða menn eigingjarnir, elska peninga, óhlýðnir foreldrum, hafa enga sjálfstjórn, grimmir, elska ekki hið góða.‘ – 2. TÍMÓTEUSARBRÉFIÐ 3:1–5.

Nú á dögum hegða margir sér eins og þessi orð spáðu fyrir um. Hegðun þeirra sannar að við lifum á „síðustu dögum“ þessa heims. Biblían spáði líka að okkar tímar myndu einkennast af styrjöldum, matvælaskorti, miklum jarðskjálftum og sjúkdómum. (Matteus 24:3, 7, 8; Lúkas 21:10, 11) Allt þetta veldur miklum þjáningum og dauða.