Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Þekking sem veitir von

Þekking sem veitir von

Guð hefur lofað okkur frábærum breytingum í náinni framtíð. Hann ætlar að binda enda á þjáningar og gera lífið yndislegt fyrir mannkynið. (Sálmur 37:11) Hvers vegna getum við treyst þessu loforði? Vegna þess að „Guð er ekki maður sem lýgur“. (4. Mósebók 23:19) Hugleiddu sumt af því góða sem skapari okkar ætlar sér að gera.

Guð mun fjarlægja vonda menn

„Þegar vondir menn spretta eins og illgresi og allir afbrotamenn blómstra verður þeim útrýmt fyrir fullt og allt.“ – SÁLMUR 92:7.

Eins og við sáum í síðustu grein heldur illskan áfram að magnast. Þetta ætti ekki að koma okkur á óvart. Þegar allt kemur til alls sagði Biblían fyrir að á „síðustu dögum“ yrði fólk sérstaklega illskeytt. Á síðustu dögum hvers? Þessa óguðlega heims. Guð mun brátt fjarlægja þá sem neita að hætta rangri hegðun. Þá verður bara gott fólk á jörðinni – fólk sem hlýðir Guði. „Hinir réttlátu munu erfa jörðina og búa á henni að eilífu.“ – Sálmur 37:29.

Guð mun útrýma Satan

„Guð, sem veitir frið, mun bráðlega kremja Satan.“ – RÓMVERJABRÉFIÐ 16:20.

Þegar allir vondir menn ásamt Satan og illu öndunum verða horfnir mun friðurinn loks vara um alla jörð. Skapari okkar lofar: „Enginn mun hræða [þig].“ – Míka 4:4.

Guð bindur enda á sjúkdóma og dauða

„Tjald Guðs er hjá mönnunum … Hann mun þerra hvert tár af augum þeirra og dauðinn verður ekki til framar. Engin sorg, angistaróp né kvöl verður heldur til.“ – OPINBERUNARBÓKIN 21:3, 4.

Þjáningar og dauði munu heyra sögunni til vegna þess að Guð ógildir tjónið sem Satan, Adam, Eva og ófullkomleiki okkar hefur valdið. Árangurinn verður sá að jafnvel „dauðinn verður ekki til framar“. Allir sem elska skapara sinn munu lifa að eilífu. En hvar á fólkið að búa?

Skapari okkar gerir jörðina að paradís

„Óbyggðirnar og skrælnað landið munu fagna, eyðisléttan gleðjast og blómstra eins og saffrankrókus.“ – JESAJA 35:1.

Jörðin mun dafna þegar Guð eyðir hinum illu. Það verða margir fallegir garðar og nóg af mat. (Sálmur 72:16) Sjórinn, vötnin og árnar verða hreinar og iða af lífi. Orðið „mengun“ gæti jafnvel horfið úr orðaforða okkar. Fólk mun búa í húsum sem það hefur sjálft byggt og enginn verður heimilislaus, svangur eða fátækur framar. – Jesaja 65:21, 22.

Guð vekur hina látnu til lífs á ný

‚Menn munu rísa upp.‘ – POSTULASAGAN 24:15.

Myndir þú vilja sjá látna ástvini aftur? Almáttugur Guð mun vekja þá aftur til lífs, hann reisir þá upp í paradís á jörð. Þú átt eftir að þekkja þá og þeir munu þekkja þig. Ímyndaðu þér hvað þið eigið eftir að verða glöð! Af hverju getum við verið viss um að þetta verði að veruleika? Af því að Biblían gefur okkur dæmi um fullorðna og börn sem voru reist upp til lífs og sameinuð fjölskyldum sínum á ný. Oft voru margir sjónarvottar að því þegar Jesús reisti fólk upp. – Lúkas 8:49–56; Jóhannes 11:11–14, 38–44.