Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Hvaða áhrif hefur tæknin á vináttubönd þín?

Hvaða áhrif hefur tæknin á vináttubönd þín?

Þökk sé smáskilaboðum, tölvupósti, fjarfundum og samfélagsmiðlum getur fólk auðveldlega átt í samskiptum jafnvel þótt höf og álfur aðskilji það. Við þessar aðstæður er tæknin þarfur þjónn.

En sumir eru nánast eingöngu í samskipum við aðra með hjálp tækninnar. Þeim er hætt við að …

  • sýna vinum sínum minni samkennd.

  • finna til meiri einmanaleika og tómleika.

  • vera uppteknari af sjálfum sér en öðrum.

ÞAÐ SEM ÞÚ ÆTTIR AÐ VITA

SAMKENND

Samkennd krefst þess að við hægjum á okkur og beinum allri athyglinni að annarri manneskju. Það gæti reynst erfitt fyrir þann sem er að drukkna í smáskilaboðum og færslum á samfélagsmiðlum.

Ef tæknin er farin að taka völdin gæti þér fundist skylt að svara skilaboðum vina þinna með hraði. Markmiðið verður þá að svara öllum skilaboðum hvort sem þau skipta máli eða ekki frekar en að vera til staðar fyrir vin sem þarfnast þín.

TIL UMHUGSUNAR: Hvernig getur þú sýnt samkennd þegar þú notar tæknina til að eiga samskipti við vini? – 1. PÉTURSBRÉF 3:8.

TÓMLEIKI

Rannsókn leiddi í ljós að mörgum leið verr eftir að hafa vafrað um vinsæla samskiptasíðu. Þeir sem stóðu að rannsókninni drógu þá ályktun að það að horfa á myndir og færslur annarra gæti skilið eftir þá tilfinningu að „maður hafi sóað tíma sínum“.

Auk þess getur það að horfa á spennandi myndir sem aðrir hafa birt leitt til neikvæðs samanburðar. Það gæti litið svo út sem allir aðrir séu að skemmta sér meðan þitt líf er bara rútína.

TIL UMHUGSUNAR: Hvernig getur þú forðast neikvæðan samanburð þegar þú notar samfélagsmiðla? – GALATABRÉFIÐ 6:4.

SJÁLFHVERFA

Kennari bendir á að sumir nemendanna virðist líta á vináttu sem einhliða samband sem snýst um það að hafa sem flesta á sínu bandi. a Slík vinátta snýst aðeins um það sem maður fær út úr sambandinu. Maður gæti farið að líta á vini sína eins og hver önnur öpp sem hægt er að nota eða slökkva á eftir þörfum.

TIL UMHUGSUNAR: Gefur það sem þú birtir á samfélagsmiðlum til kynna að þú sért að keppa við aðra eða viljir fá mikla athygli? – GALATABRÉFIÐ 5:26.

HVAÐ GETUR ÞÚ GERT?

SKOÐAÐU TÆKJANOTKUN ÞÍNA

Þegar tæknin er þjónn þinn frekar en húsbóndi mun hún hjálpa þér að halda sambandi við vini þína og jafnvel að verða nánari þeim.

MEGINREGLA BIBLÍUNNAR: „Kærleikurinn … hugsar ekki um eigin hag.“ – 1. KORINTUBRÉF 13:4, 5.

Hugleiddu hvaða tillögur þú vilt notafæra þér eða skrifaðu niður eigin hugmyndir.

  • Temja mér að tala við fólk í eigin persónu (í stað þess að reiða mig eingöngu á skilaboð eða tölvupóst).

  • Leggja frá mér símann (eða taka hljóðið af) meðan ég tala við aðra.

  • Draga úr tímanum á samskiptamiðlum.

  • Verða betri áheyrandi.

  • Hafa samband við vin sem er að ganga í gegnum erfiðleika.

a Greint er frá þessu í bókinni Reclaiming Conversation.