Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Kenneth E. Cook yngri ásamt Jamie, eiginkonu sinni.

Fjölgað í hinu stjórnandi ráði

Fjölgað í hinu stjórnandi ráði

AÐ MORGNI miðvikudags 24. janúar 2018 fengu Betelfjölskyldurnar í Bandaríkjunum og Kanada að heyra ánægjulega tilkynningu – bróðir Kenneth Cook yngri hafði tekið sæti í stjórnandi ráði Votta Jehóva.

Bróðir Cook er fæddur og uppalinn í sunnanverðri Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Hann kynntist sannleikanum þegar bekkjarfélagi boðaði honum trúna stuttu áður en þeir útskrifuðust úr framhaldsskóla. Bróðir Cook skírðist 7. júní 1980 og gerðist brautryðjandi 1. september 1982. Eftir tveggja ára brautryðjandastarf var honum boðið á Betel. Hann hóf Betelþjónustu sína í Wallkill í New York 12. október 1984.

Næstu 25 árin sinnti bróðir Cook ýmsum verkefnum, bæði í prentsmiðjunni og á Betelskrifstofunni. Hann kvæntist systur að nafni Jamie árið 1996 og í kjölfarið flutti hún einnig til Wallkill. Í desember 2009 voru hjónin send til Fræðslumiðstöðvar Varðturnsins í Patterson. Bróður Cook var falið að starfa við deild sem sér um að svara fyrirspurnum lesenda. Í apríl 2016 voru þau send til Brooklyn eftir að hafa snúið aftur til Wallkill um skamma hríð. Fimm mánuðum síðar fluttust þau til aðalstöðvanna í Warwick í New York. Í janúar 2017 var bróðir Cook skipaður aðstoðarmaður ritdeildar hins stjórnandi ráðs.