Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

1921 – fyrir hundrað árum

1921 – fyrir hundrað árum

„HVAÐA verkefni blasir við okkur þetta árið?“ Þessari spurningu var beint til kappsamra biblíunemenda í Varðturninum 1. janúar 1921. Síðan var vitnað í Jesaja 61:1, 2 þar sem þeir voru minntir á verkefnið sem þeim var falið, að boða fagnaðarboðskapinn. „Jahve hefir smurt mig til að flytja nauðstöddum gleðilegan boðskap ... til að boða náðarár Jahve og hefndardag Guðs vors.“ (Biblían 1912)

HUGRAKKIR BOÐBERAR

Biblíunemendurnir þurftu að vera hugrakkir til að sinna verkefni sínu. Þeir þurftu að boða „nauðstöddum gleðilegan boðskap“ og líka hinum illu „hefndardag“.

Bróðir John Henry Hoskin bjó í Kanada og boðaði hugrakkur trúna þrátt fyrir andstöðu. Vorið 1921 hitti hann meþódistaprest. Bróðir Hoskin hóf umræðurnar með því að segja: „Við ættum að ræða á vinsamlegan hátt um Ritningarnar, og jafnvel þótt við séum ekki sammála um allt getum við verið sammála um að vera ósammála og skilja sem vinir.“ En það fór á annan veg. Bróðir Hoskin segir frá: „Við höfðum aðeins talað saman í fáeinar mínútur þegar hann skellti hurðinni svo fast að ég óttaðist að glerið í henni myndi brotna.“

„Hvers vegna ferðu ekki til heiðingjanna og talar við þá?“ hrópaði presturinn. Bróðir Hoskin hafði taumhald á tungunni en hugsaði með sér þegar hann fór: „Mér fannst ég vera að tala við einn slíkan.“

Presturinn hélt árásinni áfram í messu daginn eftir. Bróðir Hoskin segir: „Hann varaði hjörð sína við mér og sagði að ég væri mesti svikahrappur sem hefði nokkurn tíma stigið fæti í bæinn og að það ætti að skjóta mig.“ Bróðir okkar var ekki hið minnsta hræddur og hélt boðuninni áfram með góðum árangri. Hann segir: „Ég naut þess að vera í boðuninni. Sumir sögðu jafnvel að ég væri ,guðsmaður‘ og spurðu mig hvort mig vantaði eitthvað sem þeir gætu gefið mér.“

SJÁLFSNÁM OG FJÖLSKYLDUNÁM

Til að hjálpa áhugasömum að taka framförum birtu Biblíunemendurnir áætlun fyrir biblíunám í The Golden Age. * Í námsáætlun fyrir börn voru spurningar sem foreldrar gátu rætt við börnin sín. Foreldrar áttu að „leggja þessar spurningar fyrir börnin og hjálpa þeim að finna svörin í Biblíunni“. Spurningar eins og „Hversu margar bækur eru í Biblíunni?“ hjálpuðu þeim að tileinka sér grundvallarþekkingu á Biblíunni. Aðrar spurningar, eins og „Ættu allir þjónar Guðs að búast við ofsóknum í einhverri mynd?“, hjálpuðu ungum boðberum að vera hugrakkir.

Námsáætlunin Aldaáætlun Guðs innihélt umhugsunarverðar spurningar fyrir þroskaða biblíunemendur. Svörin við spurningunum var að finna í 1. bindi Studies in the Scriptures. Þúsundir lesenda höfðu gagn af þessum námsáætlunum en í The Golden Age 21. desember 1921 var tilkynnt að þessar spurningar yrðu ekki lengur birtar. Hvers vegna?

NÝ BÓK!

Bókin Harpa Guðs.

Spjald með lesverkefni.

Spurningaspjöld.

Bræðurnir sem voru í forystu skildu að nýir biblíunemendur þyrftu að kynnast sannleikanum á skipulegan hátt. Bókin Harpa Guðs var gefin út á ensku í nóvember 1921 til að mæta þeirri þörf. Áhugasamir sem þáðu bókina voru um leið skráðir í biblíunámskeið. Þetta var sjálfsnám sem hjálpaði nemendum að skilja „þá áætlun Guðs að blessa mannkynið með eilífu lífi“. Hvernig virkaði þetta námskeið?

Sá sem þáði bók fékk um leið lítið spjald með lesverkefni. Viku seinna fékk hann annað spjald með spurningum byggðum á því sem hann hafði lesið. Á spjaldinu var líka lesefni fyrir vikuna á eftir.

Söfnuðurinn á staðnum sendi nemandanum nýtt spjald vikulega í 12 vikur. Oft voru það eldri boðberar eða aðrir sem gátu ekki tekið þátt í boðuninni hús úr húsi sem sáu um að senda spjöldin. Anna K. Gardner frá Millvale í Pennsylvania í Bandaríkjunum segir: „Þegar Harpa Guðs var gefin út fékk Thayle, fötluð systir mín, meira að gera við að senda fólki spurningaspjöld í hverri viku en hún gat komist yfir.“ Þegar námskeiðinu var lokið heimsótti boðberi úr söfnuðinum nemandann til að aðstoða hann við frekara biblíunám.

Thayle Gardner í hjólastól.

VERKEFNIÐ FRAM UNDAN

Í lok ársins sendi bróðir Joseph F. Rutherford bréf til allra safnaðanna. Hann skrifaði: „Boðunin um ríkið hefur á þessu ári farið víðar og skilað meiri árangri en nokkuð annað ár á uppskerutímanum.“ Hann hugsaði til framtíðar og bætti við: „Mikið verk er enn óunnið. Hvetjið aðra til að taka þátt í þessu stórkostlega starfi.“ Biblíunemendurnir svöruðu kallinu. Árið 1922 kunngerðu þeir ríkið hugrakkir í meira mæli en nokkru sinni fyrr.

^ gr. 9 The Golden Age fékk nafnið Consolation árið 1937 og Awake! (Vaknið!) árið 1946.