Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Aukagreinar í Varðturninum

Aukagreinar í Varðturninum

Margir boðberar nota JW Library® til að búa sig undir samkomur og kunna vel að meta hversu auðvelt er að finna námsgreinarnar í Varðturninum. En það eru oft aukagreinar í námsblaðinu sem hafa að geyma andlega fæðu. Hvernig finnurðu þessar greinar og hefur gagn af þeim með því að nota JW Library?

  • Fyrir neðan hverja námsgrein í Varðturninum er millifyrirsögnin „Annað lesefni“. Þar geturðu smellt á krækjuna „Fleiri greinar í þessu blaði“. Í efnisyfirlitinu hefur hver námsgrein sitt heiti og númer. Smelltu á titil þeirrar aukagreinar sem þú vilt lesa.

  • Ef þú smellir á flipann „Heim“ á JW Library er hægt að hlaða niður nýju tölublaði af Varðturninum undir „Nýjast“ þegar það birtist þar. Opnaðu síðan blaðið og skoðaðu efnisyfirlitið til að tryggja að þú hafir gagn af öllum greinunum.