Til lesenda
Kæri lesandi
Í þessu tölublaði Varðturnsins eru fimm tengdar námsgreinar sem taka fyrir eftirfarandi spurningar:
Hvaða ráðstöfun gerði Jehóva til að hjálpa jarðneskum börnum sínum að berjast gegn syndinni?
Hvernig hefur hann kennt okkur hvað einlæg iðrun felur í sér og hvernig hjálpar hann brotlegum að iðrast?
Hvaða leiðbeiningar fékk söfnuðurinn í Korintu um hvað hann ætti að gera varðandi einstakling sem syndgaði af ásettu ráði án þess að iðrast?
Hvernig ættu öldungar safnaðarins nú á dögum að taka á alvarlegri synd?
Hvernig er hægt að halda áfram að sýna einstaklingi sem hefur verið vísað úr söfnuðinum kærleika og miskunn?