NÁMSVERKEFNI
Sýndu hugrekki þegar á reynir
Lestu Jeremía 38:1–13 til að sjá hvernig þú getur verið hugrakkur eins og Jeremía og geldingurinn Ebed Melek.
Skoðaðu samhengið. Hvers vegna þurfti Jeremía að vera hugrakkur til að segja fólki frá boðskap Jehóva? (Jer. 27:12–14; 28:15–17; 37:6–10) Hvernig brást fólk við? – Jer. 37:15, 16.
Grafðu dýpra. Undir hvaða álagi var Jeremía? (jr-E 26–27 gr. 20–22) Kynntu þér nánar hvernig gryfjur voru til forna? (it-1 471) Hvernig ætli Jeremía hafi liðið í gryfjunni þegar hann sökk ofan í leðjuna? Hvað gæti Ebed Melek hafa óttast? – w12-E 1.5. 31 gr. 2–3.
Hugleiddu það sem þú hefur lært. Spyrðu þig:
-
Hvað segir þessi frásaga mér um það hvernig Jehóva verndar trúa þjóna sína? (Sálm. 97:10; Jer. 39:15–18)
-
Við hvaða aðstæður þarf ég á hugrekki að halda?
-
Hvernig get ég verið enn hugrakkari og ákveðnari í að gera það sem er rétt þegar á reynir? (w11-E 1.3. 30) a
a Sjá „Prófaðu þetta“ í Varðturninum í júlí 2023 til að fá fleiri tillögur fyrir sjálfsnám.