Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

PRÓFAÐU ÞETTA

Að teikna til að muna

Að teikna til að muna

Ertu einn af þeim sem finnst erfitt að muna það sem þú hefur lært? Hefurðu velt fyrir þér af hverju það er oft auðvelt að muna það sem Jesús kenndi? Hann notaði líkingar. Við getum séð þær fyrir okkur og það hjálpar okkur að leggja þær á minnið. Þú manst betur það sem þú lærir með því að sjá það sjónrænt fyrir þér. Hvernig geturðu gert það? Ein leið er að teikna myndir.

Þeir sem teikna myndir af því sem þeir læra muna það oft betur. Þeim finnst þessi aðferð virka bæði þegar orð eiga í hlut og hugmyndir um eitthvað óhlutlægt. Teikningarnar eru ekki listaverk heldur einfaldar og fljótgerðar skissur. Þessi aðferð er sérstaklega skilvirk fyrir eldra fólk.

Næst þegar þú sest niður til að lesa skaltu reyna að teikna myndir af því sem þú lærir. Það gæti komið þér á óvart hversu mikið þú manst!