Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

PRÓFAÐU ÞETTA

Rifjaðu upp aðalatriðin

Rifjaðu upp aðalatriðin

Áttu stundum í vandræðum með að muna það sem þú hefur lesið? Það gerist við og við hjá okkur öllum. Hvað er til ráða? Rifjaðu upp aðalatriðin.

Stoppaðu öðru hverju í sjálfsnámi þínu til að punkta hjá þér mikilvægar hugmyndir. Taktu eftir hvernig Páll postuli hjálpaði þeim sem lásu bréf hans að gera þetta þegar hann skrifaði: „Kjarni málsins er þessi.“ (Hebr. 8:1) Þannig hjálpaði hann lesendum að skilja það sem hann skrifaði og innbyrðis tengsl.

Þú gætir tekið frá tíma, kannski tíu mínútur í lok námsstundar, til að velta aðalatriðunum fyrir þér. Ef þú getur ekki rifjað þau upp skaltu líta á millifyrirsagnir eða fyrstu setningu í hverri efnisgrein til að hressa upp á minnið. Reyndu að útskýra með eigin orðum þegar þú lærir eitthvað nýtt. Það er ekki bara minnishjálp að rifja upp aðalatriðin heldur sérðu betur hvernig efnið hefur áhrif á líf þitt.