Prófaðu þetta
Verkefni fyrir börnin
Foreldrar bera þá miklu ábyrgð að fræða börnin sín um Jehóva. (Ef. 6:4) Til að hjálpa foreldrum hefur söfnuður Jehóva gefið út úrval greina, myndbanda og söngva. Hvernig geturðu notað þetta efni til að kenna börnunum þínum?
Skoðaðu hvað er í boði. Á JW.ORG er að finna allt sem hefur verið gefið út fyrir börn, þar á meðal myndbönd og verkefnablöð. a Skrifaðu „börn“ eða „unglingar“ í leitargluggann til að finna þetta efni.
Veldu það sem hentar þínu barni. Undir hlekknum „börn“ geturðu fundið verkefni sem geta komið barninu þínu að gagni. Til að finna þessi verkefni skaltu leita í „Biblíuverkefni fyrir fjölskylduna“.
Taktu þér tíma til að ræða þetta við börnin þín. Ekki láta barnið þitt horfa á myndböndin og gera verkefnin bara til að halda því uppteknu. Ræddu um þau við barnið og hjálpaðu því að byggja upp vináttu við Jehóva.
a Hægt er að finna öll myndböndin fyrir unga fólkið á JW Library® en takmarkaðan fjölda verkefnablaða.