Við getum sigrast á hatri!
Hefur þú þurft að þola hatur?
Ef ekki hefurðu trúlega orðið var við það með einum eða öðrum hætti. Við heyrum látlaust fréttir af kynþáttafordómum, útlendingahatri og fordómum í garð samkynhneigðra. Ríkisstjórnir setja þess vegna lög gegn ýmsum hatursglæpum.
Hatur leiðir oft af sér hatur. Fórnarlömb haturs svara gjarnan í sömu mynt og úr verður vítahringur haturs.
Þú hefur kannski þurft að þola fordóma, alhæfingar, háð, móðganir eða hótanir. En hatur gengur oft lengra og getur magnast upp í grimmdarlegan yfirgang, einelti, skemmdarverk, árás, nauðgun, morð eða jafnvel þjóðarmorð.
Eftirfarandi spurningum verður svarað í þessu tölublaði og sýnt fram á hvernig er hægt að sigrast á hatri:
Hvers vegna er svona mikið hatur?
Hvernig er hægt að rjúfa vítahring haturs?
Kemur einhvern tíma sá tími að hatur verður úr sögunni fyrir fullt og allt?