Hvar geturðu fundið trausta leiðsögn?
Heimurinn sem við búum í er sífellt að breytast. Hvernig geturðu verið viss um að ákvarðanirnar sem þú tekur leiði til góðs? Hvernig geturðu verið viss um að það sem er talið rétt í dag verið ekki álitið rangt á morgun?
Biblían getur hjálpað þér að taka ákvarðanir sem þú munt aldrei sjá eftir. Hvernig má það vera? Biblían er frá skapara okkar og hann veit hvað gerir okkur hamingjusöm og örugg.
„Hann hefur sagt þér … hvað er gott.“ – Míka 6:8.
Við getum treyst þeirri hagnýtu visku sem er að finna í Biblíunni. Hún er „alltaf áreiðanleg, bæði nú og að eilífu“. – Sálmur 111:8.
Við hvetjum þig til að kynna þér hvernig Biblían getur hjálpað þér í þessum síbreytilega heimi.