Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Maðurinn og konan sköpuð hvort fyrir annað

Maðurinn og konan sköpuð hvort fyrir annað

Maðurinn og konan sköpuð hvort fyrir annað

MAÐURINN og konan hafa ætíð þráð að vera saman. Jehóva Guð gerði þau þannig úr garði. Jehóva sá að það var ekki gott fyrir fyrsta manninn, Adam, að vera einsamall. Þess vegna skapaði hann honum „meðhjálp við hans hæfi“.

Jehóva lét fastan svefn falla á Adam og tók síðan eitt rifja hans og „myndaði konu af rifinu . . . og leiddi hana til mannsins“. Adam varð svo hrifinn þegar hann hitti þessa fallegu veru, sem Jehóva hafði skapað, að hann sagði: „Þetta er loks bein af mínum beinum og hold af mínu holdi.“ Kvenlegir eiginleikar gerðu Evu, sem var fullkomin, mjög aðlaðandi. Adam, sem var einnig fullkominn, var hins vegar mjög karlmannlegur og verðskuldaði virðingu. Þau voru sköpuð hvort fyrir annað. Biblían segir: „Þess vegna yfirgefur maður föður sinn og móður sína og býr við eiginkonu sína, svo að þau verði eitt hold.“ — 1. Mósebók 2:18-24.

Margar fjölskyldur sundrast nú á tímum og samband karls og konu stjórnast oft af eigingirni eða ofbeldi. Metingur milli kynjanna veldur oft ágreiningi og misklíð. Allt þetta er andstætt fyrirætlun Guðs með manninn og konuna. Mannkyninu var frá upphafi ætlað að gegna stórkostlegu verkefni á jörðinni. Konan átti að fara með einstakt og mikilvægt hlutverk við hlið mannsins. Þau áttu að starfa saman í einingu. Allt frá upphafi vega hafa guðhræddir karlar og konur leitast trúfastlega við að gegna því hlutverki sem Jehóva ætlaði þeim og það hefur fært þeim gleði og hamingju. Hvaða hlutverk eru þetta og hvernig getum við gegnt þeim?

[Mynd á blaðsíðu 3]

Guð ætlaði manninum og konunni göfug hlutverk frá upphafi.