Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Manstu?

Manstu?

Manstu?

Hefurðu haft ánægju af að lesa nýjustu tölublöð Varðturnsins? Reyndu þá að svara eftirfarandi spurningum:

• Hvaða lærdóm má draga af því að Jesús skyldi bjarga Pétri þegar hann var að sökkva í Galíleuvatn? (Matt. 14:28-31)

Ef við tökum eftir að bróðir eða systir virðist ekki hafa næga trú getum við í táknrænni merkingu rétt úr höndina og hjálpað honum eða henni að styrkja trú sína. — 15. september, bls. 8.

• Hvað kostaði það Jehóva að frelsa okkur?

Jehóva þurfti að þola það að sonur hans væri kvalinn og hæddur. Og rétt eins og Abraham var fús til að fórna syni sínum horfði Jehóva upp á að sonur sinn væri líflátinn eins og glæpamaður. — 15. september, bls. 28-29.

• Hvað má læra af Orðskviðunum 24:27?

Karlmaður, sem hyggst ganga í hjónaband, ætti að búa sig undir ábyrgðina sem fylgir því. Meðal annars þarf hann að vera í stakk búinn til að sjá fyrir fjölskyldu og fara með forystu í tilbeiðslunni. — 15. október, bls. 12.

• Hvernig eru Jehóva og Jesús okkur til fyrirmyndar um að vera kurteis og háttvís?

Þrátt fyrir háa stöðu sýnir Jehóva mönnunum góðvild og virðingu. Hann ávarpaði Abraham og Móse með hebresku orði sem breytir fyrirmælum í hæverska beiðni. (1. Mós. 13:14; 2. Mós. 4:6) Hann hlustar líka á menn. (1. Mós. 18:23-32) Jesús gerði þetta einnig og var alltaf reiðubúinn að hjálpa fólki. Oft ávarpaði hann fólk með nafni. — 15. nóvember, bls. 25.