Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Konur, af hverju að vera undirgefnar?

Konur, af hverju að vera undirgefnar?

Konur, af hverju að vera undirgefnar?

„Karlmaðurinn er höfuð konunnar.“ — 1. KOR. 11:3.

1, 2. (a) Hvað skrifaði Páll postuli um skipan Jehóva varðandi forystu og undirgefni? (b) Hvaða spurningar eru ræddar í þessari grein?

JEHÓVA hefur komið á þeirri skipan sem Páll postuli minntist á þegar hann skrifaði að „Kristur [væri] höfuð sérhvers karlmanns“ og „Guð höfuð Krists“. (1. Kor. 11:3) Í greininni á undan kom fram að Jesús leit á það sem ánægjulegan heiður að vera undirgefinn Jehóva Guði, og að kristnir karlmenn eiga að vera undirgefnir Kristi. Kristur var vingjarnlegur, mildur, umhyggjusamur og óeigingjarn í samskiptum við aðra. Karlar í söfnuðinum þurfa að vera þannig í viðmóti við aðra, einkum eiginkonur sínar.

2 En hvað um konurnar? Hver er höfuð konunnar? „Karlmaðurinn er höfuð konunnar,“ skrifaði Páll. (1. Kor. 11:3) Hvernig eiga konur að líta á þessi innblásnu orð? Gildir þessi meginregla ef eiginmaðurinn er ekki í trúnni? Er kona, sem er undirgefin karlmanninum, óvirkur félagi í hjónabandinu og hefur hún ekkert að segja um þær ákvarðanir sem teknar eru? Hvað gerir konu hrósverða í augum Jehóva?

„Ég vil gera honum meðhjálp“

3, 4. Af hverju er það til góðs að fylgja meginreglum Guðs um forystu?

3 Það var Guð sem ákvað hver ætti að fara með forystu fyrir hverjum. Eftir að Adam var skapaður sagði Jehóva: „Eigi er það gott að maðurinn sé einn. Ég vil gera honum meðhjálp við hans hæfi.“ Síðan skapaði hann Evu og Adam var alsæll að eignast félaga og meðhjálp. „Loks er hér bein af mínum beinum og hold af mínu holdi,“ sagði hann. (1. Mós. 2:18-24) Adam og Eva áttu fyrir sér þá unaðslegu framtíð að verða foreldrar fullkomins mannkyns sem gæti búið við eilífa hamingju í paradís á jörð.

4 Þegar foreldrar mannkyns gerðu uppreisn glataðist fullkomleikinn sem ríkti í Edengarðinum. (Lestu Rómverjabréfið 5:12.) En Guð leit eftir sem áður á eiginmanninn sem höfuð konunnar. Þegar eiginmaður fer rétt með forystuhlutverkið og eiginkonan virðir það er það hjónunum til gæfu og gleði. Áhrifin verða svipuð og hjá Jesú sem var fúslega undirgefinn föður sínum, Jehóva. Hann var glaður frammi fyrir augliti Jehóva öllum stundum í fortilveru sinni á himni. (Orðskv. 8:30) Vegna ófullkomleikans geta karlmenn ekki farið með forystu á fullkominn hátt og konur geta ekki sýnt fullkomna undirgefni. Þegar hjón leggja sig fram um að gera sitt allra besta eru þau hins vegar eins hamingjusöm og hægt er við núverandi aðstæður.

5. Af hverju ættu hjón að fara eftir ráðleggingunum í Rómverjabréfinu 12:10?

5 Til að hjónaband sé farsælt skiptir sköpum að hjónin fari eftir þessari ráðleggingu Biblíunnar sem er ætluð öllum kristnum mönnum: „Verið ástúðleg hvert við annað í bróðurlegum kærleika og keppist um að sýna hvert öðru virðingu.“ (Rómv. 12:10) Hjónin ættu líka bæði að leggja sig fram um að vera ,góðviljuð hvort við annað, miskunnsöm og fús til að fyrirgefa hvort öðru‘. — Ef. 4:32.

Þegar makinn er ekki í trúnni

6, 7. Hvað getur hlotist af því að kristin eiginkona sé undirgefin manni sínum þó að hann sé ekki í trúnni?

6 Hvað nú ef makinn þjónar ekki Jehóva? Oft er það eiginmaðurinn sem er ekki í trúnni. Hvernig á eiginkonan þá að koma fram við hann? Biblían svarar: „Eins skuluð þið, eiginkonur, vera eftirlátar eiginmönnum ykkar til þess að jafnvel þeir sem vilja ekki hlýða orðinu geti unnist orðalaust við hegðun kvenna sinna þegar þeir sjá ykkar grandvöru og skírlífu hegðun.“ — 1. Pét. 3:1, 2.

7 Í orði Guðs er eiginkonu sagt að vera undirgefin eiginmanni sínum þó að hann sé ekki í trúnni. Með góðri breytni sinni getur hún hvatt hann til að velta fyrir sér af hverju hún breyti eins vel og raun ber vitni. Það getur síðan orðið eiginmanninum hvatning til að fara að kynna sér trú kristinnar eiginkonu sinnar og taka síðan sjálfur við sannleikanum.

8, 9. Hvað getur kristin eiginkona gert ef vantrúaður eiginmaður hennar bregst ekki vel við góðri breytni hennar?

8 En segjum nú að eiginmaðurinn bregðist ekki vel við. Í Biblíunni er trúuð eiginkona hvött til að sýna af sér kristna eiginleika öllum stundum, hversu erfitt sem það er. Til dæmis stendur í 1. Korintubréfi 13:4: „Kærleikurinn er langlyndur.“ Kristin eiginkona ætti því að halda áfram að vera,í hvívetna lítillát, hógvær og þolinmóð‘, umbera ástandið og elska eiginmann sinn. (Ef. 4:2) Með hjálp heilags anda Guðs, starfskraftar hans, er hægt að sýna af sér kristna eiginleika jafnvel við erfiðar aðstæður.

9 „Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir,“ skrifaði Páll. (Fil. 4:13) Andi Guðs gerir kristnum maka kleift að gera margt sem hann gæti ekki ella. Það getur til dæmis verið freistandi að svara í sömu mynt þegar makinn kemur illa fram. Í Biblíunni er öllum kristnum mönnum hins vegar sagt: „Gjaldið engum illt fyrir illt . . . Ritað er: ,Mín er hefndin, ég mun endurgjalda,‘ segir Drottinn.“ (Rómv. 12:17-19) Í 1. Þessaloníkubréfi 5:15 er tekið í sama streng. Þar segir: „Gætið þess að enginn gjaldi neinum illt með illu en keppið ávallt eftir hinu góða, bæði hvert við annað og við alla aðra.“ Með stuðningi heilags anda Jehóva getum við gert margt sem við réðum ekki við í eigin krafti. Það er því viðeigandi að biðja um heilagan anda Guðs til að bæta upp það sem okkur skortir.

10. Hvernig brást Jesús við þeim sem komu illa fram við hann í orðum eða verkum?

10 Jesús er afbragðsfyrirmynd með viðbrögðum sínum við þeim sem komu illa fram við hann í orðum eða verkum. Í 1. Pétursbréfi 2:23 segir: „Hann svaraði ekki með illmælum er honum var illmælt og hótaði eigi er hann leið, heldur fól það honum á vald sem dæmir réttvíslega.“ Við erum hvött til að líkja eftir honum. Láttu ekki slæma framkomu annarra espa þig upp. Við erum öll hvött til að vera ,miskunnsöm, auðmjúk og gjalda ekki illt með illu eða illmæli fyrir illmæli‘. — 1. Pét. 3:8, 9.

Bara óvirkur félagi?

11. Hvaða stórfenglega verkefni hafa sumar kristnar konur fengið?

11 Nú á konan að vera undirgefin manninum. Þýðir það að eiginkona sé bara óvirkur félagi í hjónabandinu og hafi ekkert að segja um fjölskyldumál eða nokkuð annað? Alls ekki. Jehóva gefur jafnt konum sem körlum margs konar verkefni. Hugsaðu þér hvílíkur heiður það er að 144.000 einstaklingar skuli fá að vera konungar og prestar á himnum undir forystu Krists þegar hann ríkir yfir jörðinni. Í þessum hópi eru konur. (Gal. 3:26-29) Ljóst er að Jehóva hefur falið konum mikilvægt hlutverk.

12, 13. Nefndu dæmi um að konur hafi spáð.

12 Á biblíutímanum voru til dæmis konur sem spáðu. Í Jóel 3:1, 2 stendur: „Síðar mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá . . . jafnvel yfir þræla og ambáttir mun ég úthella anda mínum á þeim dögum.“

13 Um 120 lærisveinar Jesú voru saman komnir í loftstofu í Jerúsalem á hvítasunnu árið 33. Þetta voru bæði karlar og konur. Anda Guðs var úthellt yfir allan hópinn. Pétur gat þess vegna vitnað til þess sem Jóel hafði sagt fyrir og heimfært það á konur jafnt sem karla. Pétur sagði: „Hér er að rætast það sem spámaðurinn Jóel segir: Það mun verða á efstu dögum, segir Guð, að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá . . . Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar mun ég á þeim dögum úthella anda mínum, og þau munu spá.“ — Post. 2:16-18.

14. Hvaða hlutverki gegndu konur í útbreiðslu frumkristninnar?

14 Konur gegndu veigamiklu hlutverki í útbreiðslu kristninnar á fyrstu öld. Þær prédikuðu ríki Guðs fyrir öðrum og studdu boðunina með ýmsum hætti. (Lúk. 8:1-3) Páll postuli kallaði Föbe ,þjón safnaðarins í Kenkreu‘ svo dæmi sé tekið. Og þegar hann sendir kveðjur til trúsystkina nefnir hann nokkrar trúar konur, þeirra á meðal „Tryfænu og Tryfósu sem erfiða fyrir Drottin“. Einnig biður hann að heilsa „Persis, hinni elskuðu, sem hefur starfað svo mikið í þjónustu Drottins“. — Rómv. 16:1, 12, Biblían 1981.

15. Hvaða hlutverki gegna konur í útbreiðslu kristninnar á okkar tímum?

15 Rúmlega sjö milljónir boða fagnaðarerindið um ríki Guðs út um heim allan á okkar tímum. Stór hluti þeirra er konur á öllum aldri. (Matt. 24:14) Margar þeirra eru brautryðjendur, trúboðar eða starfa á Betel. Sálmaskáldið Davíð söng: „Drottinn lætur boðskap út ganga, heill her kvenna flytur sigurfréttina.“ (Sálm. 68:12) Þessi orð hafa sannarlega ræst. Jehóva metur konur mikils fyrir þátt þeirra í að boða fagnaðarerindið og hrinda vilja hans í framkvæmd. Þó að hann ætlist til þess að konur séu undirgefnar merkir það alls ekki að þær megi ekki láta í sér heyra.

Tvær konur sem létu í sér heyra

16, 17. Hvernig má sjá af Söru að konur eiga ekki að vera óvirkir félagar í hjónabandinu?

16 Fyrst Jehóva veitir konum margs konar verkefni ætti þá ekki eiginmaður að leita álits konu sinnar áður en hann tekur mikilvægar ákvarðanir? Það væri skynsamlegt af honum. Í Biblíunni eru nefnd nokkur dæmi um konur sem létu í sér heyra eða gerðu ákveðnar ráðstafanir án þess að eiginmenn þeirra föluðust eftir því. Lítum á tvö dæmi.

17 Sara, eiginkona ættföðurins Abrahams, bað hann oftar en einu sinni að senda frá sér hjákonuna og son hennar sökum virðingarleysis þeirra. „Abraham féllu þessi orð mjög þungt“ en Jehóva var á öðru máli. Hann sagði við Abraham: „Lát þér ekki falla þetta þungt vegna sveinsins og ambáttar þinnar. Öllu sem Sara segir skaltu hlýðnast.“ (1. Mós. 21:8-12) Abraham hlýddi Jehóva og gerði það sem Sara bað hann um.

18. Hvernig sýndi Abígail frumkvæði?

18 Hitt dæmið er Abígail, eiginkona Nabals. Davíð var á flótta undan Sál konungi sem öfundaði hann og var þá um tíma með tjaldbúðir í nágrenni við búpening Nabals. Davíð og menn hans vernduðu eigur þessa efnaða manns og tóku aldrei neitt frá honum. En Nabal var „harður í lund og illmenni“ og svaraði mönnum Davíðs „með fúkyrðum“. Hann var „bráður“ og „heimskingi“. Þegar menn Davíðs báðu kurteislega um einhverjar vistir þverneitaði Nabal. Hvernig brást Abígail við þegar hún frétti það? Án þess að gera Nabal viðvart sótti hún „í skyndi tvö hundruð brauð, tvo vínbelgi, fimm dilka, fimm seur af ristuðu korni, hundrað rúsínukökur og tvö hundruð fíkjukökur“ og færði Davíð og mönnum hans. Var rétt af Abígail að gera þetta? Jehóva „laust . . . Nabal og hann dó“, segir í Biblíunni. Davíð gekk síðar að eiga Abígail. — 1. Sam. 25:3, 14-19, 23-25, 38-42.

,Kona sem á hrós skilið‘

19, 20. Hvað er sérstaklega lofsvert í fari kvenna?

19 Konum, sem gera hlutina eins og Jehóva vill, er hrósað í Biblíunni. Í Orðskviðunum er borið lof á ,dugmikla konu‘ og sagt: „Hún er miklu dýrmætari en perlur. Hjarta manns hennar treystir henni og ekki er lát á hagsæld hans. Hún gerir honum gott og ekkert illt alla ævidaga sína.“ Síðar segir: „Mál hennar er þrungið speki og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar. Hún vakir yfir því sem fram fer á heimili hennar og etur ekki letinnar brauð. Börn hennar segja hana sæla, maður hennar hrósar henni.“ — Orðskv. 31:10-12, 26-28.

20 Hvað er sérstaklega lofsvert í fari kvenna? „Yndisþokkinn er svikull og fegurðin hverful en sú kona sem óttast Drottin á hrós skilið,“ segir í Orðskviðunum 31:30. Að óttast Jehóva felur meðal annars í sér að virða fúslega þá sem hann hefur falið að fara með forystu. „Karlmaðurinn er höfuð konunnar“ rétt eins og „Kristur er höfuð sérhvers karlmanns“ og „Guð höfuð Krists“. — 1. Kor. 11:3.

Verum þakklát fyrir gjöf Guðs

21, 22. (a) Af hverju geta kristin hjón verið Guði þakklát fyrir hjónabandið? (b) Af hverju eigum við að virða fyrirkomulag Jehóva varðandi forystu? (Sjá rammagrein á bls. 17.)

21 Kristin hjón hafa ótal ástæður til að vera Guði þakklát og tjá honum það. Þau geta stutt hvort annað á lífsleiðinni sem hamingjusöm hjón. Þau geta verið Guði sérstaklega þakklát fyrir hjónabandið vegna þess að það gefur þeim tækifæri til að ganga saman með honum. (Rut. 1:9; Míka 6:8) Hann er höfundur hjónabandsins og veit nákvæmlega hvað þarf til að hjón séu hamingjusöm. Gerið alltaf það sem Jehóva ætlast til af ykkur. Þá mun ,gleði Drottins vera styrkur ykkar‘, jafnvel í þessum hrjáða heimi. — Nehem. 8:10.

22 Kristinn eiginmaður, sem elskar eiginkonu sína eins og sjálfan sig, er tillitssamur og nærgætinn í forystuhlutverkinu. Guðrækin eiginkona styður hann dyggilega og sýnir honum djúpa virðingu. Fyrirmyndarhjón heiðra þó öðru fremur Jehóva Guð sem á skilið allt okkar lof.

Manstu?

• Hvaða fyrirkomulag hefur Jehóva varðandi forystu og undirgefni?

• Af hverju ættu hjón að sýna hvort öðru virðingu?

• Hvernig ætti kristin eiginkona að koma fram við mann sinn ef hann er ekki í trúnni?

• Af hverju ætti eiginmaður að ráðfæra sig við konu sína áður en hann tekur mikilvæga ákvörðun?

[Spurningar]

[Rammi á bls. 17]

Af hverju ber okkur að virða yfirráð?

Jehóva hefur ákveðið fyrirkomulag varðandi forystu og undirgefni meðal skynsemigæddra sköpunarvera sinna. Það hefur hann gert bæði andaverum og mönnum til góðs. Það gefur þeim tækifæri til að beita frjálsum vilja sínum og heiðra Guð með því að þjóna honum í sátt og samlyndi. — Sálm. 133:1.

Söfnuður andasmurðra kristinna manna virðir yfirráð og forystu Jesú Krists. (Ef. 1:22, 23) Þegar þar að kemur „mun og sonurinn sjálfur skipa sig undir föðurinn er lagði alla hluti undir hann svo að Guð verði allt í öllu“. (1. Kor. 15:27, 28) Þannig lætur hann í ljós að hann viðurkenni yfirráð Jehóva. Það er því viðeigandi að menn, sem eru vígðir Guði, virði það að hann hefur ákveðna reglu á forystu innan safnaðarins og í fjölskyldunni. (1. Kor. 11:3; Hebr. 13:17) Við gerum þá sjálfum okkur gott vegna þess að við njótum velþóknunar og blessunar Jehóva. — Jes. 48:17.

[Mynd á bls. 13]

Bænin getur hjálpað kristinni eiginkonu að sýna góða eiginleika.

[Myndir á bls. 15]

Jehóva metur mikils þátt kvenna í að efla hag Guðsríkis.