Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Jehóva opinberar leynda hluti

Jehóva opinberar leynda hluti

Jehóva opinberar leynda hluti

„Vissulega er Guð ykkar guð guðanna og konungur konunganna. Og leynda hluti opinberar hann.“ – DAN. 2:47.

HVERT ER SVARIÐ?

Hvaða upplýsingar hefur Jehóva opinberað okkur um framtíðina?

Hvað tákna fyrstu sex höfuð dýrsins í Opinberunarbókinni?

Hvaða samsvörun er milli dýrsins í Opinberunarbókinni og líkneskisins í draumi Nebúkadnesars?

1, 2. Hvað hefur Jehóva opinberað okkur og hvers vegna?

HVAÐA ríki verða við völd á jörðinni þegar ríki Guðs bindur enda á yfirráð manna? Við vitum það því að Jehóva Guð, sem ,opinberar leynda hluti‘, hefur birt svarið. Í ritum Daníels spámanns og Jóhannesar postula gerir hann okkur kleift að bera kennsl á þessi ríki.

2 Jehóva birti þessum mönnum sýnir þar sem brá fyrir ýmsum dýrum. Hann skýrði líka fyrir Daníel merkingu risastórs málmlíkneskis sem konungi Babýlonar birtist í draumi. Jehóva lét skrásetja frásögur af þessu og varðveita í Biblíunni til að við nytum góðs af. (Rómv. 15:4) Markmiðið var að styrkja þá von okkar að ríki hans eyði bráðlega öllum ríkjum manna. – Dan. 2:44.

3. Hverju þurfum við að átta okkur á til að skilja spádóma Biblíunnar nákvæmlega og hvers vegna?

3 Ef frásögur Daníels og Jóhannesar eru lagðar saman benda þær á átta konunga eða ríki og sýna jafnframt í hvaða röð þau koma fram. En við skiljum ekki þessa spádóma nákvæmlega nema við áttum okkur á hvað fyrsti spádómurinn í Biblíunni merkir. Af hverju? Af því að uppfylling þessa spádóms gengur eins og rauður þráður gegnum Biblíuna. Allir aðrir spádómar eru tengdir honum með einum eða öðrum hætti.

NIÐJAR HÖGGORMSINS OG DÝRIÐ

4. Hverjir eru niðjar konunnar og hvað gera þeir?

4 Skömmu eftir uppreisnina í Eden gaf Jehóva loforð um að ,kona‘ mynd eignast „niðja“. * (Lestu 1. Mósebók 3:15.) Þegar fram liðu stundir áttu niðjar konunnar að merja höfuð höggormsins Satans. Jehóva opinberaði síðar að ættleggurinn myndi liggja frá Abraham til Ísraelsþjóðarinnar og síðan frá ættkvísl Júda og ætt Davíðs konungs. (1. Mós. 22:15-18; 49:10; Sálm. 89:4, 5; Lúk. 1:30-33) Jesús Kristur reyndist vera mikilvægasti niðjinn. (Gal. 3:16) Andasmurðir bræður og systur í kristna söfnuðinum eru einnig niðjar konunnar. (Gal. 3:26-29) Jesús og hinir andasmurðu mynda í sameiningu stjórn Guðsríkis sem Jehóva notar til að sundurmola Satan. – Lúk. 12:32; Rómv. 16:20.

5, 6. (a) Hve mörg stórveldi nefna Daníel og Jóhannes? (b) Hvað tákna höfuð dýrsins í Opinberunarbókinni 13. kafla?

5 Í fyrsta spádóminum, sem borinn var fram í Eden, kemur einnig fram að Satan myndi geta af sér „niðja“. Þeir myndu hata niðja konunnar og sýna þeim fjandskap. Niðjar höggormsins eru allir þeir sem líkja eftir hatri Satans á Guði og berjast gegn þjónum hans. Í aldanna rás hefur Satan skipað niðjum sínum í ýmsar pólitískar hreyfingar eða ríki. (Lúk. 4:5, 6) Tiltölulega fá ríki manna hafa þó haft teljandi áhrif á þjóna Guðs, hvort heldur Ísraelsþjóðina eða söfnuð hinna andasmurðu. Hvers vegna skiptir það máli? Það skýrir hvers vegna aðeins er talað um átta voldug ríki í sýnum Daníels og Jóhannesar.

6 Undir lok fyrstu aldar lét Jesús Jóhannes postula sjá áhrifamiklar sýnir. (Opinb. 1:1) Í einni þeirra sér Jóhannes djöfulinn í líki dreka standa á sjávarströnd. (Lestu Opinberunarbókina 12:18-13:2.) Jóhannes sá líka undarlegt dýr stíga upp af hafinu og drekinn fékk því mikið vald. Síðar segir frá skarlatsrauðu dýri en það er líkneski af dýrinu sem nefnt er í Opinberunarbókinni 13:1. Engill segir Jóhannesi að sjö höfuð þess tákni ,sjö konunga‘ eða ríki. (Opinb. 13:14, 15; 17:3, 9, 10) Þegar Jóhannes skrifaði þetta voru fimm konunganna fallnir, einn var við völd og sá síðasti var „ókominn“. Hver eru þessi ríki eða heimsveldi? Við skulum nú ræða um öll höfuð dýrsins sem lýst er í Opinberunarbókinni. Við könnum líka hvernig Daníelsbók veitir nánari upplýsingar um þessi ríki, sum hver öldum áður en þau komu fram á sjónarsviðið.

EGYPTALAND OG ASSÝRÍA – FYRSTU TVÖ HÖFUÐIN

7. Hvað táknar fyrsta höfuðið og hvernig vitum við það?

7 Fyrsta höfuð dýrsins táknar Egyptaland af því að Egyptaland var fyrsta stórveldið til að sýna þjóð Guðs fjandskap. Afkomendum Abrahams fjölgaði mjög í Egyptalandi en niðjar konunnar, sem heitið var, áttu að koma af þeim. Egyptar tóku þá að kúga Ísraelsmenn. Satan reyndi að útrýma þjóð Guðs áður en niðjar konunnar kæmu fram. Hvernig? Með því að fá faraó til að reyna að lífláta öll sveinbörn Ísraelsmanna. Jehóva ónýtti fyrirætlun hans og frelsaði þjóð sína úr þrælkuninni í Egyptalandi. (2. Mós. 1:15-20; 14:13) Síðar lét hann þjóð sína setjast að í fyrirheitna landinu.

8. Hvað táknaði annað höfuðið og hvað reyndi það að gera?

8 Annað höfuð dýrsins táknar Assýríu. Þetta volduga ríki reyndi einnig að útrýma þjóð Guðs. Jehóva notaði Assýringa að vísu til að refsa tíuættkvíslaríkinu fyrir uppreisn þess og skurðgoðadýrkun. En síðan réðust Assýringar á Jerúsalem. Satan ætlaði sér ef til vill að útrýma konungsættinni sem Jesús átti síðar að koma af. Þessi árás var ekki liður í fyrirætlun Jehóva og hann vann því kraftaverk til að útrýma innrásarhernum og frelsa trúa þjóna sína. – 2. Kon. 19:32-35; Jes. 10:5, 6, 12-15.

BABÝLON – ÞRIÐJA HÖFUÐIÐ

9, 10. (a) Hvað leyfði Jehóva Babýloníumönnum að gera? (b) Hvað þurfti að gerast til að spádómarnir rættust?

9 Þriðja höfuð dýrsins, sem Jóhannes sá, táknar ríkið sem átti Babýlon að höfuðborg. Jehóva leyfði Babýloníumönnum að vinna Jerúsalem og flytja þjóð sína í útlegð. En áður en hann leyfði að þjóðin yrði auðmýkt varaði hann uppreisnargjarna Ísraelsmenn við að þessi ógæfa biði þeirra. (2. Kon. 20:16-18) Hann boðaði að konungsættin, sem sögð var sitja í „hásæti Drottins“ í Jerúsalem, yrði sett af. (1. Kron. 29:23) En Jehóva hét því jafnframt að afkomandi Davíðs konungs, sá sem hefði „dómsvald“ eða „réttinn“ (Biblían 1981), myndi koma og endurheimta konungdóminn. – Esek. 21:30-32.

10 Í öðrum spádómi kemur fram að musterið í Jerúsalem yrði enn tilbeiðslustaður Gyðinga þegar Messías, hinn smurði, kæmi fram. (Dan. 9:24-27) Áður en Ísraelsmenn voru fluttir í útlegð til Babýlonar var borinn fram spádómur þess efnis að Messías myndi fæðast í Betlehem. (Míka 5:1) Til að þessir spádómar rættust þurftu Gyðingar að snúa heim úr útlegðinni og endurreisa musterið. Það var hins vegar ekki venja Babýloníumanna að láta fanga sína lausa. Hvernig gat þjóð Guðs þá snúið heim? Jehóva opinberaði spámönnum sínum það. – Amos 3:7.

11. Hvaða tákn eru notuð í Biblíunni til að lýsa heimsveldinu Babýlon? (Sjá neðanmálsgrein.)

11 Daníel spámaður var meðal þeirra sem fluttir voru í útlegð til Babýlonar. (Dan. 1:1-6) Jehóva fékk honum það verkefni að opinbera hvaða ríki myndu taka við af babýlonska heimsveldinu og í hvaða röð þau kæmu. Jehóva notaði ýmiss konar tákn til að upplýsa það. Hann lét til dæmis Nebúkadnesar, konung í Babýlon, dreyma risastórt líkneski sem var samsett úr ólíkum málmum. (Lestu Daníel 2:1, 19, 31-38.) Fyrir munn Daníels upplýsti Jehóva að gullhöfuð líkneskisins táknaði heimsveldið Babýlon. * Eftir Babýlon kom heimsveldi sem táknað var með brjósti og armleggjum úr silfri. Hvaða ríki var það og hvernig myndi það fara með þjóð Guðs?

MEDÍA-PERSÍA – FJÓRÐA HÖFÐUÐIÐ

12, 13. (a) Hvað opinberaði Jehóva um fall Babýlonar? (b) Af hverju er fjórða höfuð dýrsins viðeigandi tákn Medíu-Persíu?

12 Meira en öld fyrir daga Daníels opinberaði Jehóva ýmislegt fyrir munn Jesaja um heimsveldið sem myndi vinna Babýlon. Hann upplýsti bæði hvernig Babýlon yrði unninn og nafngreindi líka sigurvegarann. Það var Kýrus Persakonungur. (Jes. 44:28-45:2) Daníel sá tvær sýnir til viðbótar um heimsveldið Medíu-Persíu. Í annarri þeirra birtist það í líki bjarndýrs sem reis upp á aðra hliðina. Því var sagt: „Éttu firn af kjöti.“ (Dan. 7:5) Í hinni sýninni sá Daníel þetta tvíveldi táknað með tvíhyrndum hrúti. – Dan. 8:3, 20.

13 Jehóva notaði heimsveldið Medíu-Persíu til að sigra Babýlon og leyfa Gyðingum að snúa heim, alveg eins og hann hafði sagt fyrir. (2. Kron. 36:22, 23) En síðar lá við að þetta sama ríki útrýmdi þjóð Guðs. Í Esterarbók í Biblíunni er sagt frá ráðabruggi Hamans sem var forsætisráðherra Persíu. Hann lagði á ráðin um að allir Gyðingar í öllu ríkinu skyldu drepnir og tiltók hvaða dag þjóðarmorðið ætti að eiga sér stað. En Jehóva skarst í leikinn og verndaði þjóð sína enn og aftur fyrir fjandskap niðja Satans. (Est. 1:1-3; 3:8, 9; 8:3, 9-14) Fjórða höfuð dýrsins í Opinberunarbókinni er því viðeigandi tákn Medíu-Persíu.

GRIKKLAND – FIMMTA HÖFUÐIÐ

14, 15. Hvað opinberaði Jehóva varðandi gríska heimsveldið?

14 Fimmta höfuð dýrsins í Opinberunarbókinni táknar Grikkland. Þegar Daníel túlkaði draum Nebúkadnesars um líkneskið opinberaði hann að kviðurinn og lendarnar, sem voru úr eiri, táknuðu þetta sama ríki. Daníel sá einnig tvær sýnir sem lýsa ótrúlega vel eðli Grikklands og áhrifamesta leiðtoga þess.

15 Í annarri sýninni sá Daníel Grikkland birtast sem hlébarða með fjóra vængi. Það var lýsandi fyrir skjóta landvinninga þess. (Dan. 7:6) Í hinni sýninni sá Daníel geithafur með stórt horn sem réðst á tvíhyrnda hrútinn, það er að segja Medíu-Persíu, og drap hann með hraði. Jehóva sagði Daníel að geithafurinn táknaði Grikkland og stóra hornið táknaði einn af konungum þess. Daníel lýsti því einnig hvernig stóra hornið brotnaði og fjögur smærri uxu í staðinn. Þótt spádómurinn væri skráður öldum áður en Grikkland varð heimsveldi rættist hann í einu og öllu. Alexander mikli var stóra hornið. Hann var voldugasti konungur Grikklands til forna og leiddi herförina gegn Medíu-Persíu. En stóra hornið brotnaði áður en langt um leið. Alexander dó meðan veldi hans stóð sem hæst, aðeins 32 ára. Ríkið skiptist síðar milli fjögurra hershöfðingja hans. – Lestu Daníel 8:20-22.

16. Hvað gerði Antíokos fjórði?

16 Eftir að hafa unnið Persíu réð Grikkland yfir landinu þar sem þjóð Guðs bjó. Gyðingar voru þá sestir að í fyrirheitna landinu á nýjan leik og höfðu endurbyggt musterið í Jerúsalem. Þeir voru enn þá útvalin þjóð Guðs og musterið var enn miðstöð sannrar tilbeiðslu. Á annarri öld f.Kr. gerðist það hins vegar að Grikkland, fimmta höfuð dýrsins, réðst á þjóð Guðs. Antíokos fjórði, einn af erfingjum hins klofna heimsveldis Alexanders, lét reisa heiðið altari á musterissvæðinu í Jerúsalem. Hann bannaði Gyðingum að iðka trú sína að viðlagðri dauðarefsingu. Enn á ný sýndu niðjar Satans hatur sitt. En ekki leið á löngu áður en Grikklandi var velt úr sessi sem heimsveldi. Hvaða ríki skyldi vera sjötta höfuð dýrsins?

RÓM – SJÖTTA HÖFUÐIÐ, HRÆÐILEGT OG ÓGNVEKJANDI

17. Hvaða þátt átti sjötta höfuðið í að uppfylla spádóminn í 1. Mósebók 3:15?

17 Róm var heimsveldi þegar Jóhannes sá sýnina um dýrið. (Opinb. 17:10) Það var sjötta höfuðið og átti veigamikinn þátt í að uppfylla spádóminn í 1. Mósebók 3:15. Satan fékk rómverska valdamenn til að höggva niðja konunnar „í hælinn“ og lama hann um tíma. Þeir réttuðu yfir Jesú og dæmdu hann til dauða eftir að hann hafði ranglega verið sakaður um uppreisnaráróður. (Matt. 27:26) En sárið greri innan tíðar því að Jehóva reisti Jesú upp frá dauðum.

18. (a) Hvaða nýju þjóð útvaldi Jehóva og hvers vegna? (b) Hvernig héldu niðjar höggormsins áfram að sýna niðjum konunnar fjandskap?

18 Trúarleiðtogar Ísraels gerðu samsæri við Rómverja gegn Jesú og á heildina litið hafnaði þjóðin honum. Jehóva yfirgaf því Ísrael og Gyðingar voru ekki lengur þjóð hans. (Matt. 23:38; Post. 2:22, 23) Hann útvaldi nýja þjóð sem er kölluð „Ísrael Guðs“. (Gal. 3:26-29; 6:16) Þessi þjóð var söfnuður andasmurðra kristinna manna en í honum voru bæði Gyðingar og fólk af öðrum þjóðum. (Ef. 2:11-18) Niðjar höggormsins héldu áfram að sýna niðjum konunnar fjandskap eftir að Jesús var dáinn og upprisinn. Róm reyndi oftar en einu sinni að útrýma kristna söfnuðinum en þeir sem mynduðu hann voru einnig niðjar konunnar. *

19. (a) Hvernig lýsir Daníel sjötta heimsveldinu? (b) Um hvað er fjallað í næstu grein?

19 Í draumnum, sem Daníel réð fyrir Nebúkadnesar, eru fætur úr járni tákn Rómaveldis. (Dan. 2:33) Daníel sá einnig sýn þar sem lýst er bæði Rómaveldi og heimsveldinu á eftir sem óx út frá því. (Lestu Daníel 7:7, 8.) Um aldaraðir virkaði Rómaveldi „hræðilegt, ógnvekjandi og afar máttugt“ í augum óvina. Í spádóminum kemur hins vegar fram að „tíu horn“ myndu vaxa af Rómaveldi og síðan myndi „annað horn og smærra“ spretta fram meðal þeirra og verða þeim yfirsterkara. Hvað merkja þessi tíu horn og hvað táknar smærra hornið? Hvaða samsvörun á smærra hornið sér í risalíkneskinu sem Nebúkadnesar sá í draumi? Um það er fjallað í greininni sem hefst á bls. 14.

[Neðanmáls]

^ gr. 4 Konan táknar söfnuð andavera á himnum og er kölluð eiginkona Jehóva. – Jes. 54:1; Gal. 4:26; Opinb. 12:1, 2.

^ gr. 11 Babýlon er táknuð bæði með höfði líkneskisins í Daníelsbók og þriðja höfði dýrsins í Opinberunarbókinni. Sjá yfirlit á bls. 12-13.

^ gr. 18 Þegar Rómaveldi eyddi Jerúsalem árið 70 voru Gyðingar ekki lengur útvalin þjóð Guðs. Eyðing borgarinnar var því ekki þáttur í uppfyllingu 1. Mósebókar 3:15.

[Spurningar]