Jesús Kristur — boðskapur hans og áhrif
Jesús Kristur — boðskapur hans og áhrif
„Varanlegasti vitnisburðurinn um vitringinn frá Kapernaúm er sá að hann skuli enn þann dag í dag hrífa hugi og hjörtu manna.“ * — GREGG EASTERBROOK, RITHÖFUNDUR.
ORÐ hafa áhrif. Vel valin viskuorð geta snortið hjartað, vakið von og breytt fólki. Enginn maður hefur verið máttugri í orðum en Jesús Kristur. Einn þeirra sem heyrði hann flytja hina frægu fjallræðu skrifaði síðar: „Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu varð mannfjöldinn djúpt snortinn af orðum hans.“ — Matteus 7:28.
Margt sem Jesús sagði er vel þekkt um allan heim enn þann dag í dag. Lítum á nokkur dæmi um innihaldsrík orð sem höfð eru eftir honum.
„Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.“ — Matteus 6:24.
„Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera.“ — Matteus 7:12.
„Gjaldið . . . keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“ — Matteus 22:21.
„Sælla er að gefa en þiggja.“ — Postulasagan 20:35.
En áhrif Jesú eru ekki aðeins fólgin í eftirminnilegum spakmælum. Boðskapurinn, sem hann prédikaði, var áhrifamikill vegna þess að hann sagði sannleikann um Guð, kenndi fólki hvernig það gæti gefið lífinu gildi og benti á að Guðsríki myndi binda enda á allar þjáningar mannanna. Þegar við lítum nánar á þennan boðskap á næstu blaðsíðum sjáum við hvers vegna Jesús hrífur hugi og hjörtu milljóna manna enn þann dag í dag.
[Neðanmáls]
^ gr. 2 Kapernaúm var talinn heimabær Jesú í Galíleuhéraði. — Markús 2:1.