FORSÍÐUEFNI | VEISTU HVAÐ GUÐ HEFUR GERT FYRIR ÞIG?
Viðburður sem þú ættir ekki að missa af
Kvöldið áður en Jesús gaf líf sitt bauð hann trúum fylgjendum sínum að minnast fórnar sinnar. Með ósýrða brauðinu og rauðvíninu á borðinu stofnsetti hann það sem kallað er „síðasta kvöldmáltíðin“ eða „kvöldmáltíð Drottins“ og sagði: „Gerið þetta í mína minningu.“ – Lúkas 22:19.
Á hverju ári halda Vottar Jehóva sérstaka samkomu til að minnast dauða Jesú á dánardegi hans.
Öllum stendur til boða að koma á þessa samkomu þar sem fluttur er fyrirlestur um hvers vegna fórnardauði Jesú er mikilvægur fyrir alla menn. Aðgangur er ókeypis og engin samskot fara fram. Sá sem færði þér þetta blað getur upplýst þig um stað og stund minningarhátíðarinnar á svæðinu þar sem þú býrð. Einnig er hægt að fara inn á vefsíðuna jw.org/is. Við hvetjum þig til að merkja við dagsetninguna og vonum innilega að þú sjáir þér fært að mæta.