Biblíuspurningar og svör
Hvað er dómsdagur?
Á biblíutímanum notaði Guð dómara til að frelsa þjóð sína undan óréttlæti. (Dómarabókin 2:18) Biblían lýsir dómsdegi framtíðarinnar sem miklum gleðitíma og segir að þá muni Jehóva, dómari allrar jarðarinnar, frelsa mannkynið undan óréttlæti. – Lestu Sálm 9:8, 9; Jesaja 26:9.
Guð hefur útvalið Jesú til að veita bæði hinum lifandi og dánu réttlæti. (Postulasagan 10:42; 17:31) Í aldanna rás hafa margir dáið án þess að hafa kynnst Guði. Á dómsdegi reisir Jesús þá aftur til lífs svo að þeir geti kynnst hinum sanna Guði og elskað hann. – Lestu Postulasöguna 24:15.
Af hverju nær dómsdagur yfir þúsund ár?
Hinir dánu verða reistir til lífs á þessu þúsund ára tímabili. (Opinberunarbókin 20:4, 12) Þeir þurfa tíma til að læra um Guð og vilja hans til að geta hlýtt honum. Ólíkt útbreiddum skoðunum kennir Biblían að fólk verði dæmt út frá því sem það gerir eftir að hafa vaknað til lífs á ný. – Lestu Rómverjabréfið 6:7.
Biblían talar einnig um dómsdag sem rennur upp skyndilega áður en þúsund árin ganga í garð. Sá dagur er líka kallaður endirinn. Á þeim degi afmáir Guð alla illa og óguðlega menn. (2. Pétursbréf 3:7) Við ættum því heilshugar að leitast við að sýna að við elskum Guð. – Lestu 2. Pétursbréf 3:9, 13.