Söngur 94
Ánægð með góðar gjafir Guðs
1. Hver gáfa góð og gjöf hver væn,
öll gæðin bestu hér,
það allt er gefur gildi mest
frá Guði sjálfum er.
Hjá honum engin umbreyting
og ekki minnsta flökt.
Hann uppspretta er alls hins besta,
það okkur er svo glöggt.
2. Við höfum ekki áhyggjur
og óttumst ei um líf.
Hans þekkjum ást og umhyggju
sem öllu veitir hlíf
Við eyðum ekki ævinni
í einskisverðug mál.
Við gjafir Guðs svo ánægð unum
en ekki þras og prjál.
3. Hið háleita í heiminum
er hégómi í raun.
Því nýtum tímann nú sem best
svo náðar öðlumst laun.
En auði geymdum Guði hjá
ei grandar líf né hel.
Það verðmætt er að vera ánægð
og vernda augað vel.
(Sjá einnig Jer. 45:5; Matt. 6:25-34; 1. Tím. 6:8; Hebr. 13:5.)