Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 122

Þúsundir bræðra

Þúsundir bræðra

(Opinberunarbókin 7:9, 10)

1. Þúsundir þúsunda bræðra;

þeir eru milljónir.

Sérhver er sannur vottur,

sýna trú ráðvandir.

Ótalmörg núna erum,

ört myndum mikinn múg,

af hverri þjóð, tungu, ætt og lýð

upphátt Guð lofum nú.

2. Þúsundir þúsunda bræðra

þjóna nú nær og fjær.

Miðlum við merkum fréttum

milljónir heyra þær.

Þegar við störfum þolgóð

þrátt fyrir álagið,

Jesús sem varðveitir veikburða

veitir þá hvíld og frið.

3. Þúsundir þúsunda bræðra

þeim sinnir Drottinn fljótt.

Jafnan á jörðu þjóna

Jehóva dag og nótt.

Ógrynni blíðra bræðra

boðskap um ríkið ber.

Samverkamenn Guðs við erum öll

ætíð á jörðu hér.