Söngur 35
Þakklát fyrir langlyndi Guðs
1. Jehóva, þú sem alvaldið átt,
opnaðir leið að fullri sátt.
Á jörðu ríkir illskan enn,
angrar hún þig og góða menn.
Þú, faðir aldrei ert seinn á þér,
illskunnar tími á þrotum er.
Þakklát við sýnum þér allt traust,
þolgæði þitt er takmarkalaust.
2. Í þínum augum árþúsund er
aðeins sem dagur liðinn hver.
Dómsdegi aftrar ekki neinn,
eigi hann dregst né verður seinn.
Þó að þér sárni syndir hvers manns
sjálfan þig gleður mest iðrun hans.
Við lítum veginn fram með von,
vegsömum nafn þitt og einkason.
(Sjá einnig Lúk. 15:7; 2. Pét. 3:8, 9.)