Söngur 79
Góðvild er máttug
1. Við þökkum Guðs orð sem þekkjum það vel
því þar mun ætíð sjást:
Þótt mikill Guð sé að mætti og vís
er máttug hans góðvild og ást.
2. Þeir íþyngdu fá þá hvatningu Krists
að hvílast þrautum frá.
Hve ljúft er hans ok og létt byrði hans
og ljúfleg hans góðvild við þá.
3. Að fyrirmynd Guðs og fordæmi Krists
á fólk að hegða sér.
Við sýnum því öll það sannkristna þel
sem samúð og góðvild Guðs er.
(Sjá einnig Míka 6:8; Matt. 11:28-30; Kól. 3:12; 1. Pét. 2:3.)