Söngur 50
Guð er fyrirmynd um kærleikann
1. Jah, Jehóva Guð svo gjafmildur hefur
gefið þér,
mér og þér,
þá kærleikans gjöf sem fyrirmynd gefur,
gagnleg hún er,
vernd okkur er.
Við fetum Guðs leið sem ljúflega hvetur,
þá leið sem er rétt og góðverkin metur,
þá einingarslóð sem gefið frið getur.
Göngum Guðs veg,
já, kærleikans veg.
2. Á skaparans braut mun elskan til bræðra
birtast sterk,
hlý og sterk,
þá knýr þessi ást sem öllu er æðra
allt okkar verk,
hvert okkar verk.
Þá munum við æ hvern ágreining jafna
og ástúðin hlý til bræðranna dafna,
nafn Guðs munum við þá virða mest nafna.
Göngum Guðs veg,
já kærleikans veg.
3. Með elsku og dug við Drottni öll þjónum
dægrin löng,
ævilöng,
þá getum við flutt með fegurstu tónum
fagnaðarsöng,
lofgerðarsöng.
Þeim boðum nafn Guðs sem hugfangnir heyra,
sem hlusta í raun og skilja æ fleira,
í þjónustu Guðs þá gleðjumst við meira.
Göngum Guðs veg,
já kærleikans veg.
(Sjá einnig Rómv. 12:10; Ef. 4:3; 2. Pét. 1:7.)