Söngur 46
Jehóva er konungur
1. Hinn hæsta, Jehóva, við heiðrum
því að himinninn boðar hans réttlæti.
Syngjum glaðlegan söng okkar Guði til lofs,
gefum gaum að máttarverkum hans.
(VIÐLAG)
Himnar fagni og fold, gleði fyllist Guðs þjóð,
því að Guð Jehóva ríkir nú.
Himnar fagni og fold, gleði fyllist Guðs þjóð,
því að Guð Jehóva ríkir nú.
2. Við Drottin dáum meðal þjóða,
boðum daglega hjálpræðisverkin hans.
Hann er konungur hár, vegsemd krýndur og tign
og við krjúpum hásæti hans hjá.
(VIÐLAG)
Himnar fagni og fold, gleði fyllist Guðs þjóð,
því að Guð Jehóva ríkir nú.
Himnar fagni og fold, gleði fyllist Guðs þjóð,
því að Guð Jehóva ríkir nú.
3. Nú stjórnin réttláta er stofnsett,
einnig staðfest er vald smurða sonarins.
Allir falsguðir heimsins með skömm lúti lágt
því öll lofgjörð heyrir Guði til.
(VIÐLAG)
Himnar fagni og fold, gleði fyllist Guðs þjóð,
því að Guð Jehóva ríkir nú.
Himnar fagni og fold, gleði fyllist Guðs þjóð,
því að Guð Jehóva ríkir nú.
(Sjá einnig 1. Kron. 16:9; Sálm. 68:21; 97:6, 7.)