Söngur 23
Jehóva er styrkur og stoð
1. Jehóva, styrkur og stoð okkar er,
stuðning og gleði við höfum af þér.
Sem þínir vottar mjög fús þína fregn
flytjum við þótt sumir standi því gegn.
(VIÐLAG)
Þú, Jehóva Guð, ert styrkur og stoð,
stöðugt við kynnum nafn þitt og boð.
Voldugi Jehóva valdið átt þú,
vígi traust ertu og hjálpræði nú.
2. Ljósið þitt frelsar og fær okkur glatt,
frjáls við nú sjáum hvað rétt er og satt.
Við getum boð þín í Biblíu séð,
bjargföst því Guðsríki stöndum við með.
(VIÐLAG)
Þú, Jehóva Guð, ert styrkur og stoð,
stöðugt við kynnum nafn þitt og boð.
Voldugi Jehóva valdið átt þú,
vígi traust ertu og hjálpræði nú.
3. Glaðsinna þjónum við þér æ við hlið,
þótt Satan reiðist á þig treystum við.
Þó að hann ógni við hræðumst ei hót,
himnanna ríki við tókum í mót.
(VIÐLAG)
Þú, Jehóva Guð, ert styrkur og stoð,
stöðugt við kynnum nafn þitt og boð.
Voldugi Jehóva valdið átt þú,
vígi traust ertu og hjálpræði nú.
(Sjá einnig 2. Sam. 22:3; Sálm. 18:3; Jesaja 43:12.)