Söngur 87
Nú erum við eitt
1. Hér er nú loks hold mitt og bein,
héðan af stöndum við ekki ein.
Guð hefur gefið mér maka,
gleði hér ríkir hrein.
Núna sem eitt, náð getum því,
nátengd Jehóva, sameinuð í
einingarbandinu blíða,
bundin er eining ný.
Sérhvern dag, dýrkum við saman Guð,
sinnum Drottins hag,
auðsýnum elskunnar brag.
Stöndum við heit, staðföst í lund,
stefnum á marga gleðinnar stund.
Í verki Jehóva virðum
og ætíð vertu ást mín ein.
(Sjá einnig 1. Mós. 29:18; Préd. 4:9, 10; 1. Kor. 13:8.)