Söngur 63
Sýnum tryggð
1. Tryggð við sýnum sönnum Guði,
trygga sönnum okkar trú.
Sem hans vígðir vottar stöndum,
boð hans viljum þekkja nú.
Ráð hans aldrei bregðast okkur,
hlýðum orðum skaparans.
Hann er tryggur, treystum honum,
aldrei týnum vegi hans.
2. Tryggð við bræður sanna sýnum,
þolum saman raunastund.
Treystum alltaf, góðvild glæðum,
réttum glöð fram hjálparmund.
Heiðrum alla bræður okkar,
treystum okkar bræðrabönd.
Orð Guðs bindur okkur betur
kærleiksböndum um öll lönd.
3. Tryggð við sýnum, leiðsögn lútum,
þeim sem leiða Drottins hjörð.
Ráðum þeirra fús við fylgjum
sem um fræðslu standa vörð.
Þá mun blessun okkar bíða,
kvöl Guð bætir engri við.
Þegar trygg og trúföst erum
veitir trúr Guð okkur grið.
(Sjá einnig Sálm. 149:1; 1. Tím. 2:8; Hebr. 13:17.)