Söngur 135
Staðföst allt til enda
1. Orð Guðs allt okkur gerir kleift
að ganga staðföst nú.
Á sterkum grunni stendur það
sem styrk við elskum í trú.
Í hreinni trú og heilbrigðri
dag Guðs hafðu efst í hug.
Með ráðvendni í raunum þá
í reynd bætir þú þinn dug.
2. Þá haltu fast í fyrri ást
hún fjarað gæti út.
Og hvað sem það mun kosta þig,
já, kvíða sorgir og sút.
Í raunum þínum efast ei,
aldrei óttast þrautir þær.
Úr fjötrum frelsar Jehóva
sem fljótt stendur okkur nær.
3. Þeir allir eru staðfastir
til enda hólpnir þá.
Á lista Guðs í lífsins bók
má letruð nöfn þeirra sjá.
Þá stefndu nú á staðfestu
og á stöðuglyndið traust.
Þér Jehóva mun frelsi fá
og fögnuð sinn endalaust.
(Sjá einnig Hebr. 6:19; Jak. 1:4; 2. Pét. 3:12; Opinb. 2:4.)