Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 86

Trúfastar konur, kristnar systur

Trúfastar konur, kristnar systur

(Rómverjabréfið 16:2)

1. María, Sara, Ester, Rut og aðrar

ötular sýndu þær eiginmönnum tryggð.

Guðrækni þeirra var bjargföst á trú byggð.

Margir bera kennsl á þær með nafni nú.

Fleiri konur kunni Guð að meta,

hvergi nefndar nafni, þær sýndu sömu trú.

2. Trúfesti, gæska, djörfung, ástrík alúð,

einkenni sem menn sjá góðu fólki hjá,

dyggðir sem konur þær okkur minna á.

Já, þær eru okkur einstök fyrirmynd.

Kristnar systur, þið sem Guði þjónið,

þjónustan er dýrmæt og ykkur gleðilind.

3. Mæður og dætur, eiginkonur, ekkjur,

iðnar þið takið í verki Drottins þátt.

Framkoman hógvær og hjartað lítillátt.

Með Guðs hylli óttist ekki neina raun.

Kristnum systrum Jehóva mun sinna,

sannfærðar í trúnni þið bráðum hljótið laun.