Söngur 136
Ríki Guðs er stofnsett – komi það!
(Opinberunarbókin 11:15; 12:10)
-
Frá eilífð þú Jehóva ert,
um eilífð verður þá.
Til valda þinn son hefur sett
og senn það allir sjá.
Guðs stofnsett ríki stendur hátt,
hans stjórn mun ná til allra brátt.
(VIÐLAG)
Nú reist Guðs ríki er
og ríkir frá himneskum stað.
Það blessun mönnum ber.
Við biðjum því Guð: „Komi það!“
-
Guðs óvinur nauma tíð á,
það aðeins þýðir eitt.
Þótt örðug nú sé okkar öld
er sýn á framtíð veitt.
Guðs stofnsett ríki stendur hátt,
hans stjórn mun ná til allra brátt.
(VIÐLAG)
Nú reist Guðs ríki er
og ríkir frá himneskum stað.
Það blessun mönnum ber.
Við biðjum því Guð: „Komi það!“
-
Um himnana fögnuður fer
við fagran englasöng.
Við lygarann eru þar laus
og ljót hans orð og röng.
Guðs stofnsett ríki stendur hátt,
hans stjórn mun ná til allra brátt.
(VIÐLAG)
Nú reist Guðs ríki er
og ríkir frá himneskum stað.
Það blessun mönnum ber.
Við biðjum því Guð: „Komi það!“
(Sjá einnig Dan. 2:34, 35; 2. Kor. 4:18.)