Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 118

Auk okkur trú

Auk okkur trú

(Lúkas 17:5)

  1. 1. Guð Jehóva, við ófullkomin erum

    og illar hneigðir hjartans eru tál.

    Sú synd er til sem völdin getur tekið,

    að skorta trú á þig í okkar sál.

    (VIÐLAG)

    Auk okkur trú, við treystum á þig, faðir,

    hún verði traust og ætíð nógu sterk.

    Auk okkur trú í takt við þína miskunn,

    þig ætíð tigni okkar orð og verk.

  2. 2. En þér mun enginn þóknast vel án trúar,

    á þína umbun sýnum fyllsta traust.

    Með trúarskjöld, sem ver okkur og skýlir,

    við áfram skulum halda óttalaust.

    (VIÐLAG)

    Auk okkur trú, við treystum á þig, faðir,

    hún verði traust og ætíð nógu sterk.

    Auk okkur trú í takt við þína miskunn,

    þig ætíð tigni okkar orð og verk.