SÖNGUR 141
Lífið er kraftaverk
-
1. Sérhvert saklaust barn, sérhver döggin væn,
sérhver geisli sólu frá, sáðlöndin græn
eru gjafir Guðs, gera ljóst hans lag,
kraftaverk sem knýja okkur hvern lífsins dag.
(VIÐLAG)
Hvað eigum við með gjöf hans að gera þá?
Elska gjafarann og lífið og ást okkar tjá.
Við gætum aldrei greitt neitt gjald fyrir lífið.
Sú gjöf er ætíð gjöf og guðlegt kraftaverk.
-
2. Aðrir gefast upp, eygja von ei þeir,
óma orðin konu Jobs: Reyndu ei meir.
Aldrei líkjumst þeim, allt gott lofum hér,
allar góðar stundir lífsins þökkum við þér.
(VIÐLAG)
Hvað eigum við með gjöf hans að gera þá?
Sýna gæsku öðru fólki og ást okkar tjá.
Við gætum aldrei greitt neitt gjald fyrir lífið.
Sú gjöf er ætíð gjöf og guðlegt kraftaverk.
(Sjá einnig Job. 2:9; Sálm 34:13; Préd. 8:15; Matt. 22:37-40; Rómv. 6:23.)